Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

X

(Jón Egilsson hrl.)

Mál þetta, sem dómtekið var 26. síðasta mánaðar, var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. september síðastliðinn, á hendur X, kt. 000000-0000, [...], „[f]yrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 26. júlí 2017, á heimili ákærða að [...], haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingarskyni, 5,08 g af kókaíni og 34 stykki af Ecstasy sem lögreglan fann við leit“ og að hafa þannig brotið gegn 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á 5,08 g af kókaíni og 34 töflum af Ecstasy samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Um málsatvik er skírskotað til framangreindrar ákæru.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem ekki er talin ástæða til að draga í efa að sé sannleikanum samkvæm, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem saksókn á hendur honum tekur til samkvæmt framansögðu og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar.

Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og að sú refsing verði skilorðsbundin. Þá gerir skipaður verjandi kröfu um hæfilega þóknun sér til handa.

Ákærði, sem fæddur er [...], hefur gengist við sakargiftum, hvort tveggja fyrir dómi og á rannsóknarstigi, og er það virt honum til málsbóta. Samkvæmt því sem greinir á framlögðu sakavottorði hefur hann ekki áður gerst sekur um brot gegn refsilöggjöf. Að framangreindu virtu þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í þrjátíu daga. Rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppkvaðningu, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Á grundvelli 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, skal ákærði sæta upptöku á þeim fíkniefnum sem hald var lagt á, eins og nánar greinir í dómsorði.

Með vísan til 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 er ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað málsins, sem er þóknun verjanda hans, Jóns Egilssonar hæstaréttardómslögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 84.320 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Annan sakarkostnað leiddi ekki af meðferð málsins.

Hákon Þorsteinsson, aðstoðarmaður dómara, dæmir mál þetta.

D ó m s o r ð :

Ákærði, X, sæti fangelsi í þrjátíu daga, en fresta skal fullnustu refsingar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði sæti upptöku á 5,08 g af kókaíni og 34 töflum af Ecstasy, sem hald var lagt á.

Ákærði greiði 84.320 krónur í sakarkostnað, sem er þóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar hæstaréttardómslögmanns.

Hákon Þorsteinsson

Heimildaskrá