Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 2. febrúar 2017.
Mál nr. S-11/2017:
Ákæruvaldið
(Emil Sigurðsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Jaroslaw Krupa
Lykilorð
Fangelsi. Ökuréttur. Umferðarlagabrot. Útivist.
Útdráttur
Ákærði var dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 10. síðasta mánaðar, á hendur Jaroslaw Krupa, kt. 000000-0000, Kópavogsbraut 65 í Kópavogi, „fyrir eftirtalin umferðarlagabrot framin á árinu 2016: 1. með því að hafa laugardaginn 5. nóvember ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Miklubraut, við Ártúnsbrekku í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. [...] Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum. 2. með því að hafa miðvikudaginn 30. nóvember ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Kringlumýrarbraut, við Borgartún í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. [...] Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“ Um málsatvik er skírskotað til framangreindrar ákæru.
Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll, en í fyrirkalli sem gefið var út 16. síðasta mánaðar og var birt ákærða ásamt ákæru málsins 23. sama mánaðar, kom meðal annars fram að sækti ákærði ekki þing mætti hann búast við að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið það brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Dómurinn telur þannig sannað, með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og eru brot hans réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákærunni. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar.
Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærða þrívegis verið gerð refsing, í öllum tilvikum vegna umferðarlagabrota, en þar af hafa eftirgreind brot áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu. Með sátt hjá lögreglustjóra 30. mars síðastliðinn samþykkti hann sektargreiðslu og tímabundna sviptingu ökuréttar, fyrir að aka sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, en hann hafði áður verið sviptur ökurétti með annarri slíkri sátt. Þá samþykkti hann sektargreiðslu með sátt hjá lögreglustjóra 27. október síðastliðinn, fyrir að aka bifreið of hratt og sviptur ökurétti 6. júlí síðastliðinn.
Að framangreindum sakaferli virtum, sbr. 5. töluliður 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og eftir 77. gr. sömu laga, þykir refsing ákærða samkvæmt 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga, hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga. Ekki eru efni til að skilorðsbinda þá refsingu. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Hákon Þorsteinsson, aðstoðarmaður dómara, dæmir mál þetta.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Jaroslaw Krupa, sæti fangelsi í 45 daga.
Hákon Þorsteinsson .