Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-2/2016:

D Ó M U R

nr. S-2/2016:

Ákæruvaldið

(Vilhjálmur Reyr Þórhallsson saksóknarftr)

gegn

Hemen Osman Mustafa

(Theodór Kjartansson hdl)

Skjalafals

Lögreglustjóranum   á   Suðurnesjum   í   dag   á   hendur   Hemen   Osman   Mustafa, fæðingardagur 1. mars 1982, íraskur  ríkisborgari, „fyrir skjalafals, með því að hafa, föstudaginn 1. janúar 2016, framvísað við tollgæslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni,  ítölsku   vegabréfi   nr.  AA0836749,   á   nafni   Tobias   Gallea,   f.d. 01.03.1982, með gildistíma frá 25.06.2007 til 24.06.2017, sem reyndist breytifalsað, þ.e. falsað að hluta, í kjölfar þess að ákærði hafði verið stöðvaður af tollgæslunni vegna tollskoðunar. Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. “

Ákærði   krefst   aðallega   að   honum   verði   ekki   gerð   refsing   og   að málskostnaður verði lagður á ríkissjóð en til vara er krafist vægustu refsingar og málskostnaðar. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Samkvæmt   dómaframkvæmd   þykir   refsing   ákærða   hæfilega   ákveðin fangelsi í 30 daga. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 2. janúar sl. Samkvæmt 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 ber ákærða að greiða sakarkostnað málsins. Um er að ræða þóknun verjanda hans, Theodórs Kjartanssonar   hdl.,   sem   er   hæfilega   ákveðin   250.000   krónur,   að   meðtöldum virðisaukaskatti. Dóm þennan kveður upp Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Hemen Osman Mustafa, fæðingardagur 1. mars 1982, sæti fangelsi í 30 daga. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 2. janúar sl. með fullri dagatölu.

Ákærði   greiði   málsvarnarlaun   skipaðs   verjanda   síns,   Theodórs Kjartanssonar héraðsdómslögmanns, 250.000  krónur.

Gunnar Aðalsteinsson