Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Mál þetta, sem þingfest var 26. september sl. og dómtekið samdægurs, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsettri 12. ágúst 2013, á hendur X, kt. 000000-0000, [...], „fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 24. janúar 2013, haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingarskyni, samtals 14 stk. kannabisplöntur, 2.234,72 g af kannabislaufum og 24,27 g af kannabisefnum og hafa um skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur, er ákærða framvísaði lögreglu við húsleit á dvalarstað ákærðu að [...], Reykjanesbæ.

Telst þessi háttsemi ákærðu varða við 2., sbr. 4., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Þá er þess krafist að framangreind 14 stk. af kannabisplöntum, 2.234,72 g af kannabislaufblöðum og 24,27 g af kannabisefnum, sem hald var lagt á umrætt sinn, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Auk þess er krafist að ákærðu verði gert að sæta upptöku á haldlögðum búnaði og áhöldum til framleiðslu fíkniefna, með vísan til 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.“

Ákærða kom fyrir dóminn og játaði greiðlega sök. Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun refsingar. Ákærða krafðist vægustu refsingar. Er játning ákærðu í samræmi við önnur gögn málsins og verður hún sakfelld fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærða hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt gögnum málsins vísaði ákærða á ofangreind fíkniefni við húsleit á þáverandi heimili hennar. Í matsgerð Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands, dagsettri 14. mars sl., kemur fram að tvö sýni hafi verið send til rannsóknar. Í fyrra sýninu mældist magn tetrahýdrókannabínóls í þurru sýni 23 mg/g, sem samsvarar 14 mg/g í sýninu fyrir þurrkun. Í seinna sýninu mældist magn tetrahýdrókannabínóls í þurru sýni 86 mg/g sem samsvarar 28 mg/g í sýninu fyrir þurrkun.

Samkvæmt sakavottorði, sem liggur frammi í málinu, var ákærðu gerð refsing þann 4. desember 2006 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Aftur var ákærðu gerð refsing fyrir sama brot með sátt þann 10. desember 2010 og aftur þann 10. desember 2010. Verður við mat á ítrekunaráhrifum að líta á síðarnefndu tvo dómana sem eina refsingu.

Með hliðsjón af magni og styrkleika þeirra efna sem fundust hjá ákærðu og því að efnin voru ætluð til sölu og dreifingar samkvæmt ákærðu sjálfri, er refsing nú ákveðin fangelsi í sex mánuði en rétt þykir að skilorðsbinda þrjá mánuði refsingarinnar og skal hún niður falla að liðnum þremur árum, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærða greiði allan sakarkostnað, sem er samkvæmt yfirliti 147.497 krónur vegna matsgerðar. Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærða, X, sæti fangelsi í sex mánuði en fresta skal fullnustu þriggja mánaða refsingarinnar og skal hún niður falla að liðnum þremur árum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærða greiði allan sakarkostnað 147.497 krónur.

Upptæk eru gerð 14 stk. af kannabisplöntum, 2.234,72 grömm af kannabislaufblöðum og 24,27 g af kannabisefnum. Auk þess er haldlagður búnaður og áhöld til framleiðslu fíkniefna gerð upptæk.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá