Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-986/2010:

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir settur vararíkissaksóknari)

gegn

X

(Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl)

Þinghald.

Kröfu ákærða um lokuð þinghöld var hafnað.

Mál þetta, sem tekið var til úrskurðar í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af ríkissaksóknara 18. nóvember 2010 á hendur X, kt. […], Hafnarfirði, fyrir manndráp, með því að hafa, að morgni sunnudagsins 15. ágúst 2010, veist að Hannesi Þór Helgasyni, kt. […], á heimili hans að Hábergi 23 (sic), Hafnarfirði, og banað honum með því að stinga hann ítrekað með hnífi í brjóst, bak, háls, andlit, handleggi og hendur. Gengu hnífsstungur m.a. í hjarta, lunga og nýra.

Þetta er talið varða við 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er aðallega krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar en til vara að honum verði gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun, sbr. 62. gr. almennra hegningarlaga. Þess er jafnframt krafist að ákærði verði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Þá er í ákæru málsins þess krafist af hálfu Helga Vilhjálmssonar og Jónu Steinunnar Patriciu Conway að ákærði verði dæmdur til að greiða þeim miskabætur og skaðabætur vegna útfararkostnaðar, auk lögmannsþóknunar. Enn fremur gerir Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir kröfu um miskabætur auk lögmannsþóknunar.

Við þingfestingu málsins 19. nóvember sl. játaði ákærði þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Þá viðurkenndi hann bótaskyldu gagnvart Helga og Jónu Steinunni en hafnaði bótaskyldu gagnvart Guðlaugu Matthildi. Í téðu þinghaldi  var af hálfu ákærða þess krafist með vísan til a-liðar 1. mgr. 10. gr. laga nr. 88/2008 að þinghöld í málinu yrðu framvegis lokuð til hlífðar sakborningi og fjölskyldu hans, en til vara að þinghaldi verði lokað meðan ákærði og geðlæknar gefa skýrslu við aðalmeðferð málsins. Í þinghaldi í dag var fallið frá varakröfu um að aðalmeðferð málsins verði lokað þinghald að hluta til. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er það meginregla að þinghöld séu háð í heyranda hljóði og er þessi meginregla varin í 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Heimilt er að víkja frá þessari grundvallarreglu í undantekningartilvikum, m.a. ef það er nauðsynlegt til hlífðar sakborningi, brotaþola, vandamönnum þeirra, vitni eða öðrum sem málið varðar. Fyrir liggur geðrannsókn sem dómkvaddur matsmaður framkvæmdi og yfirmat þar sem m.a. er lýst hörmulegu áfalli sem ákærði og fjölskylda hans varð fyrir er faðir hans svipti sig lífi á heimilinu, en matsmenn telja atvik þetta hafa haft djúpstæð áhrif á ákærða og mótað líf hans. Niðurstaða matsmanna er sú að ákærði hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum, er hann framdi verknað þann sem í ákæru greinir, vegna svæsins geðrofs. Réttarhöld í máli sem þessu hljóta eðli máls samkvæmt almennt að vera viðkvæm og þungbær fyrir sakborning og fjölskyldu hans. Eins og áður segir er það meginregla að almenningur geti fylgst með réttarhöldum og fjölskylda hins látna krefst þess eindregið að málsmeðferðin verði opinber. Að mati dómsins eru aðstæður ekki það sérstakar að réttlætt geti að aðalmeðferð verði háð fyrir luktum dyrum. Að þessu sögðu og með vísan til dóms Hæstaréttar í máli nr. 179/2002 verður að hafna kröfu ákærða.

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Kröfu ákærða, X, um að þinghöld í málinu verði háð fyrir luktum dyrum, er hafnað.

Sandra Baldvinsdóttir

Heimildaskrá

Dómaskrá