Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-31/2008:

S-31/2008:

Ákæruvaldið

(Dagmar Ösp Vésteinsdóttir ftr)

gegn

Erlu Björgu Rúnarsdóttur

Þjófnaður.

Sakfelld fyrir þjófnað. Sæti fangelsi í 30 daga skilorðsb. í 2 ár.

Mál þetta er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 15. janúar sl. á hendur ákærðu, Erlu Björgu Rúnarsdóttur, kt. 000000-0000, Suðurgötu 28, Sandgerði, "fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 21. desember 2007, í verslun Hagkaupa, Smáralind, Kópavogi stolið Ali hamborgarhrygg að verðmæti kr. 2.474, tveimur pakkningum af gervinöglum, að verðmæti kr. 1.149 og kr. 1.249, og tveimur pakkningum af skrauti fyrir gervineglur, hvor að verðmæti kr. 1.219, allt samtals að verðmæti kr. 7.310.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar."

Mál þetta er dæmt samkvæmt heimildarákvæði 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en með skýlausri játningu ákærðu, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, telst sannað að hún hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega færð til refsiákvæða.

Ákærða hlaut þann 20. október 2006 15.000 króna sekt samkvæmt dómsátt fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga þannig að brot hennar nú er ítrekað brot gegn þjófnaðargrein hegningarlaga. Hún hefur játað brot sitt greiðlega og lýst því fyrir dóminum að um áráttuhegðun sé að ræða sem hún hafi leitað sér hjálpar við.

Þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi sem rétt þykir að skilorðsbinda til 2ja ára þannig að refsivistin falli niður að þeim tíma liðnum haldi ákærða almernnt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr 19/1940.

Engan sakarkostnað leiddi af málinu.

DÓMSORÐ

Ákærða, Erla Björg Rúnarsdóttir, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingar og niður skal hún falla að liðnum 2 árum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Sveinn Sigurkarlsson