Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 11. febrúar 2008.
Mál nr. S-25/2008:
Ákæruvaldið
(Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr)
gegn
Lenu Margréti Konráðsdóttur
Lykilorð
Útdráttur
Ákærða sakfelld fyrir innflutning á fíkniefnum. Ákærða sæti fangelsi í 6 mánuði en 4 mánuðum af refsingunni fresta skilorðsb. í 2 ár. Ákærða sæti upptöku á fíkniefnum. Auk þess greiði ákærða allan sakarkosnað.
Mál þetta sem dómtekið var í dag er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum á útgefinni 14. janúar 2008 á hendur Lenu Margréti Konráðsdóttur, kt. 000000-0000, Hlíðarvegi 48, Ólafsfirði, "Fyrir eftirtalin brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni;
- Fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 22. mars 2005, tekið ófrjálsri hendi úr verslun Hagkaupa, Skeifunni, Reykjavík, vörur að verðmæti kr. 5.384.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Fyrir fíkniefnabrot, með því að hafa mánudaginn 10. apríl 2006, flutt til landsins með flugi nr. FI-543 frá París, Frakklandi, í sölu- og dreifingarskyni, samtals 113,16 g af kókaíni er hún faldi innvortis.
Telst háttsemi þessi varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til að sæta upptöku á 113,16 g af kókaíni samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1987, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001."
Mál þetta er dæmt samkvæmt heimildarákvæði 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en með skýlausri játningu ákærðu, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, telst sannað að hún hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega færð til refsiákvæða.
Samkvæmt sakaskrá hefur ákærðu frá árinu 2004 þrívegis verið gert að greiða sektir fyrir brot á lögum nr. 65/1974, síðast 14. mars 2007. Þá hefur henni tvívegis verið gert að greiða sekt fyrir brot gegn 1. mgr. 37. gr. umferðarlaga. Þá hlaut hún skilorðsbundna ákærufrestun í 2 ár 14. júní 2006, en hefur rofið skilorð ákærufrestunarinnar með broti því sem hún er nú sakfelld fyrir samkvæmt 2. lið ákærunnar og því var þargreint mál dæmt með sbr. 1. gr. ákæru.
Þegar refsing ákærðu er metin í máli þessu, verður að líta til þess, að ákærða fer ótilneydd í ferð til Spánar í því skyni að flytja um 1 kg af kókaíni og að hagnast á því um eina milljón króna. Henni hefur verið ljóst að efnin voru ætluð til sölu- og dreifingar hér á landi, sem og þau 113,16 g sem hún hafði með sér til landsins og faldi innvortis. Ekkert liggur fyrir um að hún hafi sjálf átt að selja eða dreifa efnum hér á landi. Hér var því um mjög sterkt kókaín að ræða og það voru aðstæður, sem ekki snertu ákærðu sem urðu til þess að hún hafði með sér aðeins lítinn hluta af því magni sem til stóð. Á hinn bóginn ber að líta til þess, að hún var tiltölulega ung, tæp tvö ár eru liðin frá því að hún framdi brotið og ákærða hefur verið samvinnufús við rannsókn málsins. Að öllu þessu virtu þykir refsing ákærðu með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga hæfilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði.
Fram er komið að ákærða hafi verið í óreglu er hún framdi brotin, en hún hafi nú snúið við blaðinu sé hætt neyslu vímuefna og stundi nú fasta vinnu og hafi verið til sjós í heilt ár og hafa verið lagðir fram launaseðlar um að hún hafi verið háseti á skipinu Háey ÞH 275 og Lagey sem gerð eru út frá Húsavík. Að þessu athuguðu þykir mega fresta fullnustu á 4 mánuðum af framangreindri refsingu og falli hún niður að liðnum 2 árum haldi ákærða almennt skilorð samkvæmt 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Samkvæmt heimild í 76. gr. almennra hegningarlaga ber að draga frá refsingunni gæsluvarðhaldsvist ákærðu frá 11. apríl til 15. apríl 2006.
Samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og reglugerð nr. 233/2001 ber ákærðu að sæta upptöku á 113,16 g af kókaíni, sem haldlögð voru í málinu.
Dæma ber ákærðu til greiðslu sakarkostnaðar að fjárhæð 232.158 krónur, en þar af ákveðst þóknun verjanda hennar Guðmundar B. Ólafssonar hrl. fyrir störf í málinu eftir útgáfu ákæru og á rannsóknarstigi 160.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Dóm þennan kveður upp Guðmundur L. Jóhannesson, héraðsdómari.
Af hálfu ákæruvaldsins fór Júlíus K. Magnússon fulltrúi lögreglustjórans á Suðurnesjum með málið.
DÓMSORÐ
Ákærða, Lena Margrét Konráðsdóttir, sæti fangelsi í 6 mánuði, en fresta skal fullnustu á 4 mánuðum af refsingunni og niður skal hún falla að liðnum 2 árum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955. Þá kemur gæsluvarðhaldsvist hennar frá 11. apríl til 15. apríl 2006 til frádráttar refsingunni.
Ákærða sæti upptöku á 113,16 g af kókaíni.
Ákærða greiði 232.158 krónur í sakarkostnað, þar af er þóknun til verjanda hennar Guðmundar B. Ólafssonar hæstaréttarlögmanns fyrir störf á rannsóknarstigi málsins og eftir útgáfu ákæru 160.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Guðmundur L. Jóhannesson Rétt endurrit staðfestir.
Héraðsdómi Reykjaness 11.02.2008.