Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 31. janúar 2008.
Mál nr. S-24/2008:
Ákæruvaldið
(Sævar Lýðsson fulltrúi)
gegn
Davíð Freyr Atlasyni
Lykilorð
Nytjastuldur. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Sakfelldur fyrir nytjastund og umferðarlagabrot. Sæti fangelsi einn mánuð skilorðsb. í 2 ár og greiði 80.000 krónur í sekt.
Mál þetta sem dómtekið var í dag er með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum útgefinni 7. janúar 2008 á hendur Davíð Frey Atlasyni, kt. 000000-0000, Heiðargerði 14, Reykjanesbæ "fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot með því að hafa að kvöldi mánudagsins 11. júní 2007 heimildarlaust tekið bifreiðina OA805 af bifreiðastæði Nord Rent bílaleigu í Grófinni í Keflavík og ekið bifreiðinni án ökuréttar á allt að 127 km hraða á klukkustund þar sem leyfður hámarkshraði var 90 km á klukkustund á Reykjanesbraut í vestur á vegarkafla vestan Grindavíkurvegar, uns lögreglan stöðvaði akstur ákærða.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940, sbr. lög nr. 20,1956, 2. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50,1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48,1997, 3. gr. laga nr. 57,1997.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar."
Mál þetta er dæmt samkvæmt heimildarákvæði 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en með skýlausri játningu ákærða, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, telst sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega færð til refsiákvæða.
Samkvæmt sakaskrá hefur ákærður ekki áður gerst brotlegur við refsilög.
Refsing ákærða þykir með vísun í 100. gr. umferðarlaga og 259. gr. almennra hegningarlaga hæfilega ákveðin þannig, að ákærður sæti fangelsi í 1 mánuð, en þegar litið er til ungs aldurs ákærða og hann hefur ekki gerst brotlegur við refsilög áður þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum 2 árum haldi ákærður almennt skilorð samkvæmt 57. gr. almennra hegningarlagan r. 19,1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærður greiði og 80.000 krónur í sekt og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4ra vikna.
Engan kostnað leiddi af sökinni.
Dóm þennan kveður upp Guðmundur L. Jóhannesson, héraðsdómari.
Af hálfu ákæruvaldsins fór Sævar Lýðsson fulltrúi lögreglustjórans á Suðurnesjum með málið.
DÓMSORÐ
Ákærði, Davíð Freyr Atlason, sæti fangelsi í einn mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum 2 árum haldi ákærður almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærði greiði 80.000 krónur í sekt til ríkissjóðs og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4ra vikna.
Guðmundur L. Jóhannesson