Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-904/2007:

D Ó M U R

S-904/2007:

Ákæruvaldið

(Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi)

gegn

Davíð Þór Arnarssyni

Ávana- og fíkniefni.

Ákærði dæmdur til sektarrefsingar vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

Mál þetta, sem dómtekið var 7. þ.m., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, útgefinni 18. júlí 2007, á hendur Davíð Þór Arnarssyni, kt. (...), Heiðargarði 5, Reykjanesbæ fyrir eftirtalin refsilagabrot:

Fyrir ávana- og fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum 0.83 grömm af kannabisefni er lögregla hafði afskipti af honum að Fífumóa 5b, Reykjanesbæ, 3. febrúar 2007.

Telst þetta varða við 2. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980 sbr. lög nr. 13/1985, og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld lyf nr. 233/2001.

Fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa 22. mars 2007 haft í vörslum sínum að Brekkubraut 7, Reykjanesbæ, 0.21 gramm af amfetamíni, 17.49 grömm af kannabisefni og 2.25 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Telst þetta varða við 2. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld lyf nr. 233/2001.

Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum.

Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í málinu samkvæmt framansögðu.

Með játningu ákærða, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, er sannað að ákærði hafi haft í vörslum sínum 0.83 grömm af kannabisefni 3. febrúar 2007 svo og að hann hafi 22. mars sama ár haft í vörslum sínum 0.21 grömm af amfetamíni, 17.49 grömm af kannabisefni og 2.25 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni. Er þess háttsemi hans réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Sakarferill ákærða er með þeim hætti að frá árinu 2000, hefur hann gengist undir fjórar sáttir og eina viðurlagaákvörðun, aðallega vegna brota á lögum nr. 65/1974 og nr. 50/1987. Ákærði hefur hlotið 4 refsidóma frá 2001, þar af hefur hann tvisvar hlotið skilorðsbundna fangelsisrefsingu, síðast árið 2002 þegar hann hlaut 6 mánaða fangelsisrefsingu, skilorðsbundna í 3 ár. Með dómum frá 2004 og 2006 hlaut ákærði sektarrefsingar. Fram hefur komið við meðferð málsins að ákærði muni hafa snúið við blaðinu og tekið upp nýtt líferni, m.a með því að vinna að forvarnarstarfi á Suðurnesjum.

Refsing ákærða þykir með hliðsjón af öllum atvikum hæfilega ákveðin 88.000 króna sekt. Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, er fallist á kröfu ákæruvalds um að ákærði sæti upptöku á þeim fíkniefnum sem hann hafði í vörslum sínum 3. febrúar og 22. mars 2007 og lögregla lagði þá hald á.

Anna M. Karlsdóttir settur héraðsdómari dæmir mál þetta.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Davíð Þór Arnarson, skal greiða 88.000 króna sekt til ríkissjóðs innnan fjögurra vikna frá dómsuppkvaðningu, en sæti ella 6 daga fangelsi.

Ákærði sæti upptöku á 0.83 grömmum af kannabisefni og 0.21 grömmum af amfetamíni, 17.49 grömmum af kannabisefni og 2.25 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Anna M. Karlsdóttir