Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-902/2007:

S-902/2007:

Ákæruvaldið

(Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi)

gegn

Kristni Alfreð Sigurðssyni

Þjófnaður.

Ákærða gerð sekterrefsing vegna þjófnaðar.

Mál þetta sem dómtekið var 13. nóvember s.l., var höfðað með ákæru Lögreglustjórans á Suðurnesjum dagsettri 1. október 2007 “fyrir þjófnað með því að hafa 20. maí 2007 stolið bensíni með því að hafa á bensínstöð N1, Stapavegi 7, Vogum, dælt bensíni fyrir kr. 5.131.- á Subaru Impreza bifreið og ekið á brott án þess að greiða fyrir bensínið.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Í málinu er skaðabótakrafa frá N1 Þrjár konur ehf., kt. 421106-2070, að fjárhæð kr. 5.131.- auk vaxta eins og nánar greinir í kröfunni.”

Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Þá hefur hann greiðlega viðurkennt bótakröfu sem getið er í ákæru. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er brot hans þar rétt heimfært til refsiákvæða.

Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði gengist undir nokkrar sáttir, aðallega vegna brota á umferðarlögum og hlotið tvo refsidóma, báða á árinu 2006. Í janúar það ár var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár og 138.000 króna sekt vegna brota á almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum, auk þess sem ákærði var þá sviptur ökuréttindum í 2 ár. Í mars 2006 var ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár og 120.000 króna sekt, vegna brota á sömu lögum.

Brot það sem ákærði hefur nú játað er smávægilegt, en ákærði hefur ekki áður hlotið refsidóm fyrir augunarbrot og hefur hann lýst vilja til að bæta tjón það sem af því hlaust. Þá hefur komið fram í máli ákærða að hann leiti sér nú meðferðar vegna fíkniefnaneyslu. Hann óskar eftir að tekið verði tillit til þessa við ákvörðun refsingar. Með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga þykja því ekki efni til þess að taka upp skilorðsdóm ákærða frá 13. febrúar 2006.

Með hliðsjón af öllu ofangreindu þykir mega dæma ákærða til refsingar sem telst hæfilega ákveðin 30.000 króna sekt sem honum ber að greiða í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá dómsuppsögu en sæta ella 4ja daga fangelsi.

Anna M. Karlsdóttir settur héraðsdómari kveður upp dóminn.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Kristinn Alfreð Sigurðsson, greiði 30.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá deginum í dag að telja en sæti ella fangelsi í 4 daga.

Ákærði greiði N1 Þrjár konur ehf., kt. 421106-2070, kr. 5.131.- auk vaxta samkvæmt 7. gr. vaxtalaga frá 20.5.2007, en dráttarvaxta skv. III kafla vaxtalaga til greiðsludags.

Anna M. Karlsdóttir