Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-83/2007:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson ftr)

gegn

Steindóri Einarssyni

Steinunni Sv Bernharðsdóttur

(Kristján Stefánsson hrl)

Sæti fangelsi í 1 mánuð fyrir þjófnað. Greiði skaðabætur auk málsvarnarlauna.

Málið er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu útgefinni 13. febrúar 2007 á hendur "Steindóri Einarssyni, kt. 000000-0000, Hringbraut 121, Reykjavík, dvst. Efstasund 60, Reykjavík og Steinunni Sv. Bernharðsdóttur, kt. 000000-0000, Tröllateig 24, Mosfellsbæ, dvst. Hringbraut 121, Reykjavík fyrir eftirgreind brot:

I.

á hendur ákærða Steindóri, fyrir þjófnað með því að hafa á tímabilinu 24. til 27. september 2006, stolið kerru sem stóð innan girðingar við hesthús að Stjarnholti 1, í hesthúsahverfi Gusts í Kópavogi.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

á hendur ákærðu Steinunni, fyrir hlutdeild í framangreindu broti, með því að hafa veitt meðákærða Steindóri liðsinni sitt í verki, með því að aka bifreið þeirri er dró umrædda kerru af vettvangi.

Telst háttsemi þessi varða við 244. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar.

Í málinu gerir Auðunn F. Kristinsson, kt. 000000-0000, kröfu um að ákærðu verði dæmd til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 50.000 auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá tjónsdegi 26. september 2006, en síðan dráttarvexti samkvæmt 9. gr. sömu laga til greiðsludags."

Ákærandi féll frá ákæru á hendur Steinunni og var málið á hendur henni fellt niður.

Ákærður Steindór hefur skýlaust játað að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með þeirri játningu sem er í samræmi við framlögð sakargögn er sannað að ákærður hefur gerst sekur um þá háttsemi sem greinir í ákæru og er þar rétt færð til refsiákvæða.

Ákærður á töluverðan sakaferil að baki en frá árinu 1986 hefur hann hlotið 8 dóma, þar sem hann var í allt dæmdur til að sæta fangelsi í 33 mánuði, aðallega fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr., 244., 245. og 248. gr. almennra hegningarlaga, en þyngsti dómurinn 18 mánaða fangelsi skv. dómi Hæstaréttar frá 1. júní 2006 er fyrir brot á 1. mgr. 257. gr., 1. mgr. 106. gr., 2. mgr. 218. gr. og 233. gr. almennra hegningarlaga.  Þá hefur honum tvívegis verið gert að greiða sekt fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga og einu sinni fyrir brot gegn umferðarlögum.

Ákærður framdi brotið sem hann er nú sakfelldur fyrir áður en síðasti dómurinn frá 17. október 2006, 60 daga fangelsi var kveðinn upp á hendur honum og er refsingin nú ákveðin með hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga og þykir hæfileg fangelsi í 1 mánuð.

Ákærður hefur samþykkt framkomna bótakröfu frá Auðunni F. Kristinssyni og er hún tekin til greina.

Dæma ber ákærða til að greiða skipuðum verjanda sínum Kristjáni Stefánssyni hrl., málsvarnarlaun og þóknun vegna verjendastarfa á rannsóknarstigi og þykja þau hæfilega ákveðin 90.636 krónur, þegar tekið hefur verið tillit til virðisaukaskatts á þau. Annan kostnað leiddi ekki af sökinni.

Af hálfu ákæruvaldsins fór Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu með málið.

DÓMSORÐ

Ákærði, Steindór Einarsson sæti fangelsi í 1 mánuð.

Ákærði greiði skaðabætur til Auðuns F. Kristinssonar, kt. 000000-0000, 50.000 krónur ásamt vöxtum skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá  27. september 2006 til 9. desember 2006 en dráttarvexti skv. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði greiði skipuðum verjanda sínum Kristjáni Stefánssyni hæstaréttarlögmanni 90.636 krónur í málsvarnarlaun og þóknun fyrir verjendastörf á rannsóknarstigi og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Guðmundur L. Jóhannesson