Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-8/2007:

Ákæruvaldið

(Hólmsteinn Gauti Sigurðsson fulltrúi)

gegn

Jóhannesi Erni Guðmundssyni

Ákærði sæti fangelsi í 5 mánuði skilorðsbundið í 2 ár fyrir þjófnaðarbrot.

Mál þetta sem dómtekið var í dag og dæmt er höfðað með ákæru sýslumannsins í Kópavogi, útgefinni 23 október 2006 á hendur ákærða, Jóhannesi Erni Guðmundssyni, kt. 000000-0000, Smyrilshólum 4, Reykjavík. Samkvæmt ákæruskjalinu var hann ákærður ásamt þeim Stefáni Ísak Agnarssyni og Grími Má Bötrius. Fallið var frá ákæru á hendur Grími og síðan var þáttur Jóhannesar Arnar klofinn út úr málinu sem var nr. S-1485/06.

Samkvæmt ákæruskjali eru ákærðu Jóhannes Örn og Stefán Ísak ákærðir fyrir þjófnað, "með því að hafa að morgni mánudagsins 4. september 2006, brotist inn í raðhús að Eyktarsmára 1 í Kópavogi og stolið þaðan Canon stafrænni myndavél, Olympus filmumyndavél með tösku.  17" tölvuskjá, fartölvu, bakpoka, íþróttatösku og dvd-mynddisk, samtals að verðmæti kr. 299.692.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19;1940.

Í málinu gerir Tryggingamiðstöðin hf., kt. 000000-0000, þá kröfu að ákærðu verði dæmdir til að greiða félaginu bætur að fjárhæð kr. 200.000, auk vaxta og dráttarvaxta.

Á hendur öllum ákærðu vegna húsbrots, með því að hafa í heimildarleysi ruðst inn í hjólhýsi við Dalveg 2 í Kópavogi og dvalist þar aðfararnótt þriðjudagsins 5. september 2006.

Telst þetta varða við 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940."

Mál þetta er dæmt samkvæmt heimildarákvæði 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en með skýlausri játningu ákærða, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, telst sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega færð til refsiákvæða.

Ákærði á að baki nokkurn sakarferil. Þann 20.06 2005 var ákæru frestað á hendur honum fyrir brot gegn 244. og 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga, þann 5. september 2005 hlaut hann 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi skilorðsbundið til 2 ára fyrir brot gegn 244. gr. sömu laga og þann 15. desember 2006 hlaut hann 3 mánaða 3 mánaða fangelsisdóm skilorðsbundinn til 2 ára fyrir brot gegn 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga og 1. mgr. 4. gr. og 3. mgr. 5. gr. og 2. mgr. 44. gr. umferðarlaga. Með síðastnefnda málinu var dæmdur upp dómurinn frá 5. september 2005. Er brot ákærða nú framið fyrir uppsögu síðastnefnds dóms og samkvæmt ákvæðum 60. gr. almennra hegningarlaga verður það mál nú tekið til meðferðar og bæði málin dæmd í einu lagi og refsing tiltekin eftir reglum 78. gr. almennra hegningarlaga.

Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 5 mánaða fangelsi. Ákærði sem varð 18 ára 9. september sl. hefur stundað vinnu undanfarna 3 mánuði og hætt fíkniefnaneyslu. Þykir rétt að skilorðsbinda refsingu hans og að hún skuli niður falla að liðnum 2 árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ekki þykir bótakrafa Tryggingarmiðstöðvarinnar hf. vera reist á nægilega traustum grunni hvað varðar sönnun um fjárhæð, en byggt er á þeirri fjárhæð sem greidd var tjónþola af bótakrefjanda og engu öðru. Verður henni því vísað frá dómi sbr. 172. gr. oml. Hólmsteinn Gauti Sigurðsson fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fór með málið af hálfu ákæruvalds.

DÓMSORÐ

Ákærði, Jóhannes Örn Guðmundsson, sæti fangelsi í 5 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún niður falla að liðnum 2 árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.

Bótakröfu Tryggingarmiðstöðvarinnar hf. er vísað frá dómi.

Sveinn Sigurkarlsson