Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 25. júní 2007.
Mál nr. S-423/2007:
Ákæruvaldið
(Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi)
gegn
Emil Arnari Reynissyni
Lykilorð
Nytjastuldur. Skilorðsbundið fangelsi og sekt. Umferðarlagabrot. Þjófnaður.
Útdráttur
E. var sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot, nytjastuld og umferðarlagabrot. Dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, og til greiðslu sektar.
Mál þetta, sem dómtekið var 15. þ.m., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, útgefinni 4. maí 2007, á hendur Emil Arnari Reynissyni, kt. 000000-0000, Traðarbergi 5 í Hanarfirði „fyrir eftirtalin refsilagabrot á árinu 2006:
- Fyrir innbrotsþjófnað með því að hafa 13. október brotist inn í húsið Suðurgötu 32, Keflavík, og stolið þar haglabyssu af gerðinni Investarm, bakpoka, tveimur landakortum, TVX flakkara, tölvumús, tölvumyndavél, Acer fartölvu, 2 ferðahátölurum, Canon Ixus stafrænni myndavél, þremur SD minniskubbum, vasahníf, MP3 spilara og MacLite vasaljósi.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Fyrir hegningar- og umferðarlagabrot 12. október með því að hafa tekið ófrjálsri hendi bifreiðina NV 724 við Ásbraut 11, Reykjanesbæ, og ekið henni um götur í Reykjanesbæ og síðan til Grindavíkur undir áhrifum amfetamíns, svo hann taldist óhæfur til að stjórna bifreið og án ökuréttar.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
- Fyrir þjófnað með því að hafa stolið útvarpi með geislaspilara úr bifreiðinni NV 724, sem fjallað er um í ákærulið 2.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Við þingfestingu málsins var fært til bókar af hálfu ákæruvalds að láðst hafi að geta þess í ákæru að brot ákærða samkvæmt 3. lið hennar hafi átt sér stað 12. október 2006.
I.
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi, sem honum er gefin að sök í málinu. Telst sannað með þeirri játningu, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að ákærði hafi framið þau brot sem lýst er í ákæru. Ekki er annað fram komið en að þessi brot hafi öll átt sér stað föstudaginn 13. október 2006. Kemur röng tilgreining hvað þetta varðar í verknaðarlýsingu í ákæru og framangreindri bókun ekki í veg fyrir að sakaráfall verði dæmt, sbr. 2. málsliður 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Þá er háttsemi ákærða réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
II.
Ákærði hefur unnið sér til refsingar samkvæmt 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Á þessu og síðasta ári hefur ákærði alls 6 sinnum gengist undir sektargreiðslu hjá lögreglustjóra vegna fíkniefnabrota. Öðrum refsingum hefur ákærði ekki sætt, en hann var á 17. aldursári þegar hann framdi þau brot sem hér er dæmt um. Refsingu ákærða nú ber að ákveða með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga. Að þessu og atvikum málsins virtum og að teknu tilliti til þess að þýfið sem ákærði hafði á brott með sér í innbrotinu að Suðurgötu 32 í Reykjanesbæ komst allt til skila þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði. Rétt þykir að fresta fullnustu þeirrar refsingar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Þá verður ákærða jafnframt gert að greiða 45.000 krónur í sekt til ríkissjóðs. Verði sektin eigi greidd innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu að telja skal ákærði í hennar stað sæta fangelsi í 4 daga.
Í ákæru er þess ekki krafist að ákærði verði sviptur ökurétti vegna þess umferðarlagabrots sem hann er hér sakfelldur fyrir.
Sakarkostnaður nemur samkvæmt yfirliti sækjanda 142.717 krónur. Er þar um að ræða rannsókn á blóðsýnum sem tekin voru úr ákærða og öðrum manni. Rannsókn á blóðsýni úr ákærða leiddi í ljós að það innihélt amfetamín og lyf af flokki benzódíazepína. Samkvæmt matsgerð rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði var hið síðarnefnda ekki í það miklu magni í blóðsýninu að hægt væri að fullyrða að það hefði út af fyrir sig dregið marktækt úr hæfni ákærða til að aka bifreið. Í ljósi þessa og niðurstöðu rannsókna sem gerðar voru á blóðsýnunum að öðru leyti verður sakarkostnaður að fjárhæð 76.590 krónur felldur á ákærða.
Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari kvað upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Emil Arnar Reynisson, sæti fangelsi í þrjá mánuði. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði 45.000 krónur í sekt til ríkissjóðs og komi fangelsi í 4 daga í sektar stað, verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Ákærði greiði 76.590 krónur í sakarkostnað.
Þorgeir Ingi Njálsson