Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-421/2007:

Ákæruvaldið

(Laufey Kristjánsdóttir ftr)

gegn

Hrafnhildi Matthíasdóttur

(vínandamagn í blóði 1,29‰)

Svipting ökuréttar. Ölvunarakstur.

Sakfelld fyrir ölvunarakstur og sviptingarakstur. Svipt ökurétti í 3 ár. Greiði auk þess sekt og sakarkostnað.

Mál þetta sem dómtekið var í dag er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 8. maí s.l. á hendur Hrafnhildi Matthíasdóttur, kt. 000000-0000, Þórustíg 6d, Reykjanesbæ fyrir umferðarlagabrot, „með því að hafa ekið bifreiðinni MJ-589, aðfaranótt föstudagsins 30. mars 2007, undir áhrifum áfengis, (vínandamagn í blóði 1,29‰) og svipt ökuréttindum á bifreiðastæði við verslun Esso við Lækjargötu í Hafnarfirði.

Brotið telst varða við 1. mgr., sbr. 3. mgr., 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993, 2. gr. laga nr. 23/1998 og 8. gr. laga nr. 84/2004.“

Ákærða sótti ekki þing er mál þetta var tekið fyrir í dag og tilkynnti eigi forföll. Verður málið því dæmt samkvæmt 1. mgr. 126. gr. oml. enda var þess getið í fyrirkalli, sem ákærðu var sjálfri birt á löglegan hátt, að svo mætti fara með málið. Telst ákærða hafa framið brot það sem henni er gefið að sök og verður refsing hennar sem hefur áður sætt sviptingu ökuréttar í 12 mánuði með sátt þann 01.09 2006 fyrir brot gegn 1. sbr. 3. mgr. 45. gr. umferðarlaga auk sviptingar í 6 mánuði frá 1. september 2007 samkvæmt viðurlagaákvörðun frá 5. janúar 2007 hæfilega ákveðin 260.000 króna sekt til ríkissjóðs, en vararefsing sektar 18 daga fangelsi. Ákærða skal svipt ökurétti í 3 ár frá 1. mars 2008. Ákærða greiði 24.787 krónur í sakarkostnað.

Laufey Kristjánsdóttir fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fór með málið af hálfu ákæruvalds.

Dóm þennan kveður upp Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari.

DÓMSORÐ

Ákærða, Hrafnhildur Matthíasdóttir, greiði 260.000 króna sekt til ríkissjóðs innan 4 vikna en vararefsing sektar er 18 daga fangelsi.

Ákærða skal svipt ökurétti í 3 ár frá 1. mars 2008.

Ákærða greiði 24.787 krónur í sakarkostnað.

Sveinn Sigurkarlsson Rétt endurrit staðfestir.

Héraðsdómur Reykjaness 27.06.2007.