Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 6. júlí 2007.
Mál nr. S-397/2007:
Ákæruvaldið
(Jóhann Svanur Hauksson ftr)
gegn
Jóni Brynjari Jónssyni
(Smári Hilmarsson hdl)
Útdráttur
Sakfelldur fyrir líkamsárás. Skilorðsbundið fangelsi í 2 mánuði. Greiði auk þess sakarkostnað.
Mál þetta, sem dómtekið var 26. júní sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 2. maí 2007 gegn Jóni Brynjari Jónssyni, kt. 000000-0000, Smáratúni 4, Álftanesi fyrir líkamsárás. Er honum gefið að sök að hafa að kvöldi laugardagsins 14. október 2006, á veitingarstaðnum Pizzunni, Smiðsbúð 9, Garðabæ, slegið Örn Ólafsson, kt. 000000-0000 þrjú hnefahögg í andlitið og sparkað í höfuð hans með þeim afleiðingum að Örn hlaut nefbrot, blóðnasir og mar á öðrum hlutum höfuðs.
Telur ákæruvaldið þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981 og 111. gr. laga nr. 82/1998. Er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar.
Fyrir liggur í málinu að ákærði greiddi brotaþola skaðabætur og féll brotaþoli þá frá skaðabótakröfu sinni í málinu.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt og er það rétt fært til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur ekki áður hlotið refsingu. Refsing hans þykir hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar í tvö ár haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði kostnað sakarinnar sem er 23.200 krónur vegna læknisvottorðs.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
d ó m s o r ð:
Ákærði, Jón Brynjar Jónsson, sæti fangelsi í tvo mánuði. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og niður skal hún falla að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði kostnað sakarinnar, 23.200 krónur.
Gunnar Aðalsteinsson