Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 9. maí 2007.
Mál nr. S-356/2007:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson ftr)
gegn
Þorbergi Bergmann Halldórssyni
(Brynjar Níelsson hrl)
Útdráttur
Dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir þjófnað. Sæti upptöku á fíkniefnum, greiði skaðabætur og sakarkostnað.
Málið þetta sem dómtekið var þann 3. þ.m. er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 3. apríl sl. á hendur Þorbergi Bergmann Halldórssyni, kt. 000000-0000, óstaðsettum í hús í Reykjavík, fyrir eftirtalin brot.
I. (010-2006-58324) "Fyrir hylmingu, með því að hafa föstudaginn 13. október 2006, haft í vörslum sínum silfurborðbúnað að verðmæti um 100.000 krónur, þrátt fyrir að vita að um þjófstolna muni væri að ræða, en mununum var stolið úr bílskúr að Ljárskógum 12 í Reykjavík nóttina áður.
Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
II. (010-2006-56437) Fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 5. nóvember 2006, í verslun 11-11 að Laugavegi 116 í Reykjavík, stolið tveimur Londonlambalærum og 894 grömmum af saltkjöti, samtals að verðmæti 4.843 krónur.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 Í málinu gerir Marteinn Hjaltested þá kröfu, f.h. Kaupás hf., að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 4.843, „ásamt vöxtum samkvæmt 7. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi 5.11.2006 dráttarvaxta samkvæmt III. Kafla vaxtalaga til greiðsludags”
III. (010-2006-56477) Fyrir tilraun til þjófnaðar, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 6. nóvember 2006, í auðgunarskyni, reynt að brjótast inn í höfuðstöðvar Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19 í Reykjavík, með því að brjóta rúðu á 4. hæð hússins, en horfið af vettvangi er hann varð var við öryggisvörð bankans.
Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í málinu gerir Magnús Pálmi Skúlason þá kröfu, f.h. Kaupþing banka hf. að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 98.560, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 „frá tjónsdegi en síðan með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
IV. (010-2006-56696) Fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 7. nóvember 2006, í Bónusvideó að Grundarstíg 12 í Reykjavík, stolið tösku, með námsgögnum og fartölvu að verðmæti 179.000 krónur.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 V. (010-2006-60266) Fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 27. nóvember 2006, í versluninni 10-11 að Laugalæk í Reykjavík, stolið seðlaveski sem innihélt greiðslukort, gjafabréf frá Kringlunni að upphæð 20.000 krónur, inneignarnótu frá verslun 66° Norður að upphæð 20.000 krónur, 7 miða í Hvalfjarðargöngin og 27.000 krónum í reiðufé.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 VI. (010-2006-60313) Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa mánudaginn 27. nóvember 2006, haft í vörslum sínum 1,16 g af amfetamíni og 0,46 g af hassi, sem lögregla fann er hún hafði afskipti af honum á sólbaðsstofunni Sól 101 að Aðalstræti 9 í Reykjavík.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
VII. (010-2006-61888) Fyrir þjófnað, með því að hafa, fimmtudaginn 7. desember 2006 í verslun 10-11 að Langarima í Reykjavík, stolið 3,49 kílóum af bayonnskinku og 1,56 kílói af Londonlambi, samtals að verðmæti 8.060 krónur.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
VIII. (010-2006-58047) Fyrir tilraun til fjársvika, með því að hafa þriðjudaginn 12. desember 2006, í Bónusvideó að Grundarstíg 12 í Reykjavík, reynt að svíkja út vörur að verðmæti 6.640 krónur, með því að framvísa greiðslukorti Fanneyjar Guðmundsdóttur og þannig í heimildarleysi reynt að skuldfæra andvirði varanna á greiðslukortareikning hennar.
Telst þetta varða við 248. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
IX. (010-2006-64747) Fyrir þjófnað, með því að hafa, aðfaranótt 24. desember 2006 á veitingastaðnum Svarta kaffið að Laugavegi 54 í Reykjavík, stolið 248.710 krónum í reiðufé, með því að taka fjármunina úr poka, sem var inni á skrifstofu veitingastaðarins á 2. hæð hússins.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
X. (010-2006-64741) Fyrir þjófnað, með því að hafa, aðfaranótt 24. desember 2006 í Gallerí-Fold að Rauðarárstíg 14 í Reykjavík, stolið seðlaveski og tveimur farsímum, samtals að verðmæti 55.500 krónur, úr starfsmannaaðstöðu gallerísins.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XI. (007-2007-1368) Fyrir þjófnað, með því að hafa að kvöldi föstudagsins 5. janúar 2007, stolið myndvarpa úr fundarsal Hótels Reykjavíkur að Aðalstræti 16 í Reykjavík.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 Í málinu gerir Ólafur Haukur Ólafsson þá kröfu, f.h. Tryggingarmiðstöðvarinnar hf. að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 174.186, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 „frá tjónsdegi til þess dags er dómsmál er höfðað, en dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags.”
XII. (007-2007-8835) Fyrir þjófnað, með því að hafa að kvöldi sunnudagsins 21. janúar 2007, í verslun 11-11 að Laugavegi 116 í Reykjavík, stolið matvörum og fatnaði að verðmæti 9.036 krónur, með því að taka vörurnar úr hillum verslunarinnar og ganga með þær út úr versluninni.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XIII. (007-2007-4538) Fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 21. janúar 2007, stolið tveimur farsímum úr vaktherbergi á 6. hæð á umönnunar- og hjúkrunarheimilinu Skjóli að Kleppsvegi 64 í Reykjavík.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 Í málinu gerir Gréta Guðmundsdóttir, þá kröfu að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 22.562.
XIV. (007-2007-5069) Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 24. janúar 2007, í versluninni Krónunni að Norðurbrún 2 í Reykjavík, stolið matvöru að verðmæti 2.247 krónur.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 XV. (007-2007-5532) Fyrir skjalafals, með því að hafa fimmtudaginn 25. janúar 2007 framvísað, í leigubifreið við Rikkabar í Reykjavík, fölsuðum tékka að fjárhæð 1.630 krónur, sem ákærði hafði sjálfur falsað á illa fengið tékkaeyðublað.
Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XVI. (007-2007-5278) Fyrir skjalafals, með því að hafa fimmtudaginn 25. janúar 2007 framvísað í leigubifreið við Norðurbrún 1 í Reykjavík, fölsuðum tékka að fjárhæð 2.300 krónur, sem ákærði hafði sjálfur falsað á illa fengið tékkaeyðublað.
Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XVII. (007-2007-5278) Fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 25. janúar 2007, í verslun 10-11 að Laugalæk í Reykjavík, stolið lambafille að verðmæti um 10.000 krónur.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 XVIII. (007-2007-5278) Fyrir skjalafals, með því að hafa fimmtudaginn 25. janúar 2007 framvísað, í bakaríinu Korninu að Laugalæk í Reykjavík, fölsuðum tékka að fjárhæð 1.925 krónur, sem ákærði hafði sjálfur falsað á illa fengið tékkaeyðublað.
Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XIX. (007-2007-7193) Fyrir þjófnað, með því að hafa fimttudaginn 25. janúar 2007, í menningarmiðstöðinni Gerðuberg í Reykjavík, stolið fartölvu af gerðinni Dell að verðmæti 100.000 krónur, úr fundarsal miðstöðvarinnar.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 XX. (007-2007-6421) Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 30. janúar 2007, haft í vörslum sínum 1,40 g af amfetamíni, sem lögregla fann er hún hafði afskipti af honum við Stórahjalla í Kópavogi.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
XXI. (007-2007-8865) Fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 8. febrúar 2007, í verslun Hagkaupa í Smáralind í Kópavogi, stolið geisladisk að verðmæti 1.499 krónur, með því að taka hann úr hillu verslunarinnar og ganga með hann út úr versluninni.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXII. (007-2007-12137) Fyrir þjófnað, með því að hafa, þriðjudaginn 20. febrúar 2007, stolið veski, með tveimur greiðslukortum og 7.000 krónum í reiðufé, úr starfsmannaaðstöðu Hótels Reykjavíkur að Rauðarárstíg 37 í Reykjavík.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXIII. (007-2007-12137) Fyrir fjársvik, með því að hafa að kvöldi þriðjudagsins 20. febrúar 2007, í myndbandaleigunni Ríkinu við Snorrabraut í Reykjavík, svikið út vörur að verðmæti 28.350 krónur, með því að framvísa greiðslukorti Elisabeth Höllu Fitzgerald og þannig í heimildarleysi látið skuldfæra andvirði varanna á greiðslukortareikning hennar.
Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í málinu gerir Elisabeth Halla Fitzgerald, kt. 000000-0000, þá kröfu að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 30.350.
XXIV. (007-2007-12152) Fyrir tilraun til fjársvika, með því að hafa að kvöldi þriðjudagsins 20. febrúar 2007, í Krambúðinni að Skólavörðustíg í Reykjavík, reynt að svíkja út fjögur karton af sígarettum, með því að framvísa greiðslukorti Elisabethar Höllu Fitzgerald og þannig í heimildarleysi reynt að skuldfæra andvirði varanna á greiðslukortareikning hennar.
Telst þetta varða við 248. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXV. (007-2007-11951) Fyrir þjófnað, með því að hafa, aðfaranótt þriðjudagsins 20. febrúar 2007, brotist inn í Samtímasafnið að Laugavegi 37 í Reykjavík, með því að brjóta rúðu í aðalinngangi safnsins og stolið þaðan tölvu af gerðinni Apple að verðmæti 220.000 krónur.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í málinu gerir Pétur Kristinn Arason, kt. 000000-0000, þá kröfu að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 46.000, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að framangreind fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001."
Mál þetta er dæmt samkvæmt heimildarákvæði 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en með skýlausri játningu ákærða, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, telst sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega færð til refsiákvæða. Hann hefur ekki andmælt bótakröfum að því frátöldu að hann krefst þess að bótakröfum sem tíundaðar eru í 23. og 25. ákærulið verði vísað frá dómi. Krefst verjandi þess að ákærði verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög leyfa.
Ákærði á að baki langan sakaferil. Hér skiptir einkum máli að hann hefur m.a. alls 18 sinnum hlotið dóm fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, þar af 12 sinnum fangelsisdóm fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga. Hann hefur 7 sinnum hlotið refsingu fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og 5 sinnum fyrir brot gegn 259. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærði hefur játað allar sakargiftir í ákæru undanbragðalaust.
Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir eru mörg og varða flest ekki háar fjárhæðir en sextán þeirra varða við 244. gr. alm. hgl., þrjú við 248. gr. alm. hgl., þrjú við 155. gr., tvö við lög um ávana og fíkniefni og eitt við 1. mgr. 254. gr. alm. hgl. Brot samkvæmt I. og II. ákærulið eru hegningarauki við sátt frá 6. nóvember 2006. Því ber að tiltaka refsingu með hliðsjón af 78. sbr. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði lýsti því fyrir dóminum að hann ætti tæplega 2 ára gamla dóttur og að hann væri staðráðinn í því að leita sér hjálpar við fíkniefnavanda sem hann hefur átt við að glíma, sem hann telur afbrot sín eiga rætur að rekja til undantekningarlaust. Ákærði hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála frá 21. febrúar 2007. Að öllu þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 15 mánaða fangelsi og komi gæsluvarðhaldsvist hans frá 21. febrúar 2007 til frádráttar með fullri dagatölu.
Að kröfu ákæruvalds eru gerð upptæk 2.56 g af amfetamíni og 0.46 g af hassi, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Fallist er á með vísan til. 172. gr laga um meðferð opinberra mála að vísa skaðabótakröfum Elisabethar H. Fitzgerald að fjárhæð 30.350 krónur og Péturs K. Arasonar að fjárhæð 46.000 krónur frá dómi enda þykja þær ekki studdar viðhlítandi gögnum þannig að unnt sé að leggja á þær dóm án málflutnings um þær sem ekki þykir unnt að stofna til eins og á stendur. Aðrar skaðabótakröfur sem fram koma í ákæru og ákærði hefur ekki gert athugasemdir við, dæmist hann til þess að greiða eins og segir í dómsorði.
Loks ber að dæma ákærða til greiðslu sakarkostnaðar sem nemur 150.000 krónum og eru málsvarnarlaun Brynjars Níelssonar hrl. skipaðs verjanda að meðtöldum virðisaukaskatti.
DÓMSORÐ
Ákærði, Þorbergur Bergmann Halldórsson, sæti fangelsi í 15 mánuði.
Gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 21. febrúar 2007 skal koma til frádráttar fangelsisrefsingunni með fullri dagatölu.
Ákærði greiði sem sakarkostnað málsvarnarlaun Brynjars Níelssonar hrl. skipaðs verjanda síns 150.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Skaðabótakröfum Elisabethar H. Fitzgerald að fjárhæð 30.350 krónur og Péturs K. Arasonar að fjárhæð 46.000 krónur er vísað frá dómi.
Ákærði sæti upptöku á 2,56 g af amfetamíni og 0,46 g af hassi, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Þá skal ákærði greiða skaðabótakröfu. Kaupáss hf., að fjárhæð 4.843 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 7. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi 5.11.2006 og dráttarvaxta samkvæmt III. kafla vaxtalaga til greiðsludags, skaðabótakröfu Kaupþings banka hf. að fjárhæð 98.560 krónur, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi en síðan með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá birtingu kröfunnar til greiðsludags, skaðabótakröfu Tryggingar-miðstöðvarinnar hf. að fjárhæð 174.186 krónur, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi til þess dags er dómsmál er höfðað, en dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags og skaðabótakröfu Grétu Guðmundsdóttur að fjárhæð 22.562 krónur.
Sveinn Sigurkarlsson Rétt endurrit staðfestir.
Héraðsdómi Reykjaness 9.5.2007.