Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 4. maí 2007.
Mál nr. S-345/2007:
Ákæruvaldið
(Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi)
gegn
Jónatan Einari Hjaltasyni
Útdráttur
J var sakfelldur fyrir þjófnað og dæmdur í skilorðsbundið fangelsi.
Mál þetta, sem dómtekið var 2. þ.m., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum útgefinni 28. mars 2007 á hendur Jónatan Einari Hjaltasyni, kt. 000000-0000, Greniteigi 7, Reykjanesbæ, fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 „með því að hafa í janúar 2007 stolið fjórum hjólböðrum ásamt felgum af bifreiðinni SV-892 þar sem bifreiðin stóð á bifreiðastæði við Flugstöð Leifs Eiríkssonar“.
Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Bótakrafa á hendur ákærða, sem sett var fram af lögmanni fyrir hönd eiganda bifreiðarinnar SV-892 og tekin upp í ákæru, var afturkölluð undir rekstri málsins þar sem fullnaðargreiðsla á henni hefur farið fram.
I.
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi, sem honum er gefin að sök í ákæru. Telst sannað með þeirri játningu og framkomnum sakargögnum að öðru leyti að ákærði hafi með þeim hætti sem lýst er í ákæru brotið gegn því ákvæði almennra hegningarlaga sem þar er vísað til.
II.
Ákærði hefur með broti því, sem hann er nú sakfelldur fyrir, unnið sér til refsingar samkvæmt 244. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærði sætti árið 2005 sektarrefsingum vegna tveggja umferðarlagabrota. Refsing hans nú þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga. Þykir mega fresta fullnustu hennar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.
Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari dæmir mál þetta.
D ó m s o r ð
Ákærði, Jónatan Einar Hjaltason, sæti fangelsi í 45 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningui dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Þorgeir Ingi Njálsson