Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 24. apríl 2007.
Mál nr. S-298/2007:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson ftr)
gegn
Grzegorz Swiecicki
Lykilorð
Útdráttur
Sæti fangelsi í 4 mánuði, 3 mánuðir skilorðsbundnir í 2 ár, sviptur ökurétti í 3 ár og greiði sakarkostnað.
Málið þetta er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 22. mars sl. á hendur ákærða, Grzegorz Swiecicki, kt. 000000-0000, Árvegi 8, Selfossi 3, fyrir hegningar- og umferðarlagabrot, með því að hafa um kl. 22:20 að kvöldi laugardagsins 11. nóvember 2006, ekið bifreiðinni MJ-019, undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 1.32o/oo), austur Reykjanesbraut í Garðabæ, eftir vegarkafla þar sem umfangsmiklar vegaframkvæmdir stóðu yfir við Molduhraun, án nægjanlegrar aðgæslu og of hratt miðað við aðstæður, en útsýni var slæmt vegna myrkurs og takmarkaðrar lýsingar, með þeim afleiðingum að ákærði ók yfir vegstiku og á steinblokkir, sem settar höfðu verið upp sem vegþrenging, þannig að bifreiðin kastaðist upp og valt, og Wojciech Mieczkowski, fæddur 26. janúar 1980, farþegi bifreiðarinnar, klemmdist á milli bílsins og götunnar og hlaut við það svo alvarlega áverka á höfði og á brjóstkassa, að hann lést skömmu síðar.
Telst þetta varða við 215. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 4. gr., 1. mgr. og b.-og m.-lið 2. mgr. 36. gr. og 1. mgr. sbr. 3. mgr. 45. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993, 2. gr. laga nr. 23/1988, 8. gr. laga nr. 84/2004 og 18. gr. laga nr. 66/2006.
Mál þetta er dæmt samkvæmt heimildarákvæði 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en með skýlausri játningu ákærða, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, telst sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega færð til refsiákvæða.
Ákærða á ekki að baki neinn sakaferil. Við ákvörðun viðurlaga ákærða telur dómari óhjákvæmilegt að horfa til þess sem segir í skýrslu rannsóknara um þær aðstæður sem ákærði var í er banaslysið varð og ákærði hefur játað að bera ábyrgð á, auk þeirrar staðreyndar að hann var undir áhrifum áfengis. Í þeirri skýrslu kemur fram það mat rannsóknara að helstu orsaka slyssins sé ekki síst að leita í þeim aðstæðum sem voru á staðnum þegar óhappið átti sér stað eins og það er orðað. Segir þar; ,, M.t.t. ástands ökumanns, ásamt því að ekki verður hjá því komist að líta til þeirra vegaframkvæmda sem þarna voru og aðstæðna þeim tengdum eru þessir þættir, að mati rannsóknara, álitnir helsta orsök slyssins.“ Þá kemur fram í vettvangsskýrslu lögreglu að framkvæmd merkinga og frágangur hafi engan veginn verið með fullnægjandi hætti af hálfu veghaldara en stefnuvísandi ör sem átti að blikka gulu ljósi logaði ekki vegna bilunar.
Að öllu þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 4 mánaða fangelsi og þykir rétt að fresta fullnustu 3 mánaða af henni í 2 ár og að sá hluti falli niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. l9/1940. Þá skal ákærði sæta sviptingu ökuréttar í 3 ár frá birtingu dómsins.
Á yfirliti lögreglustjóra eru reikningar vegna matsgerðar vegna bíltæknirannsóknar að fjárhæð 425.790 krónur og matsgerðar vegna hraðaútreiknings að fjárhæð 156.621 króna. Er það mat dómara að þessi kostnaður sé ekki svo nauðsynlegur í þágu saksóknar eins og málinu er háttað, að hann verði lagður á ákærða. Verður ákærði því dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglustjóra að þessum kostnaði frátöldum eða 246.227 krónur auk málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns Hilmars Ingimundarsonar hrl,. 427.254 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum eða samtals 673.481 króna.
Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi lögreglustjóra sótti málið.
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari kveður upp dóminn.
DÓMSORÐ
Ákærði, Grzegorz Swiecicki, sæti fangelsi í 4 mánuði en fresta skal fullnustu 3 mánaða af refsingunni og sá hluti hennar niður falla að liðnum 2 árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærði sæti sviptingu ökuréttar í 3 ár frá birtingu dómsins.
Ákærði greiði 673.481 krónu í sakarkostnað þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 427.254 krónur.
Sveinn Sigurkarlsson