Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-188/2007:

Ákæruvaldið

(Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir ftr)

gegn

Arnóri Sigurðssyni

Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Ávana- og fíkniefni.

A var sakfelldur fyrir fíknefnalagabrot og dæmdur til greiðslu sektar.

Mál þetta, sem dómtekið var 17. þ.m., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu útgefinni 6. mars 2007 á hendur Arnóri Sigurðssyni, 000000-0000, Miðvangi 117, Hafnarfirði „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 2. júní 2006, á dvalarstað sínum að Rauðhellu 10, Hafnarfirði, haft í vörslum sínum 0,19 g af marihuana, sem ákærði framvísaði við húsleit lögreglu.

Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.“

Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á þeim fíkniefnum sem lögregla lagði hald á 2. júní 2006.

I.

Ákærði sótti ekki þing við fyrirtöku málsins í dag og boðaði ekki forföll. Er dómur nú lagður á málið samkvæmt heimild í 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, enda var þess getið í fyrirkalli, sem ákærða var sjálfum birt lögum samkvæmt, að svo mætti fara með málið. Telst ákærði hafa gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru greinir og varðar hún við 1. mgr. 2. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni með áorðnum breytingum.

II.

Ákærði hefur nú unnið sér til refsingar samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974.

Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur hann tvisvar sinnum áður gerst sekur um fíkniefnalagabrot og var þeim málum lokið með sáttargerð hjá lögreglustjóra 30. maí 2006.

Ákærða verður nú gert að greiða sekt til ríkissjóðs og þykir hún hæfilega ákveðin 30.000 krónur. Verði sektin eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa skal ákærði í hennar stað sæta fangelsi í 2 daga.

Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, er fallist á kröfu ákæruvalds um að ákærði sæti upptöku á þeim fíkniefnum sem hann hafði í vörslum sínum 2. júní 2006 og lögregla lagði þá hald á.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari dæmir mál þetta.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Arnór Sigurðsson, greiði 30.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa, en sæti ella fangelsi í 2 daga.

Ákærði sæti upptöku á 0,19 g af marihuana sem ákærði hafði í vörslum sínum 2. júní 2006 og lögregla lagði hald á.

Þorgeir Ingi Njálsson