Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-138/2007:

Ákæruvaldið

(Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari)

gegn

Þóru Kjartansdóttur

Sæti fangelsi í 1 mánuð skilorðsbundið í 2 ár fyrir hegningarlagabrot. Svipt ökurétti í 6 mánuði. Greiði sekt í ríkissjóð auk sakarkostnaðar.

Mál þetta sem dómtekið var í dag,  er með ákæru ríkissaksóknara útgefinni 14. febrúar 2007 á hendur Þóru Kjartansdóttur, kennitala 000000-0000, Leynisbrún 15, Grindavík, fyrir umferðar- og hegningarlagabrot:

"1.  Umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 16. júlí 2006, ekið bifreiðinni NF-460, undir áhrifum áfengis (vínandamagn í bóði 1,01 o/oo), frá Staðarhrauni 2 í Grindavík uns lögregla stöðvaði akstur ákærðu við Heiðarhraun 32a í Grindavík.

Telst þetta varða við 1. sbr. 2. mgr. 45. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.

  1. Brot gegn valdstjórinni, með því að hafa sömu nótt, í lögreglubifreið á leið frá Grindavík til Keflavíkur, ráðist með ofbeldi á lögreglumanninn Jóhann Braga Birgisson, sem þar var að sinna skyldustörfum sínum, og bitið hann í hægra hné þannig að það bólgnaði og lögreglumaðurinn þurfti að fá stífkrampasprautu og taka inn sýklalyf til að hindra sýkingu.

    Telst þetta varða við 106. gr. almennra hegningarlag nr. 19/1940.

    Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum."

    Mál þetta er dæmt samkvæmt heimildarákvæði 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en með skýlausri játningu ákærðu, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, telst sannað að hún hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega færð til refsiákvæða.

    Ákærða hefur ekki áður gerst brotleg við refsilög og þykir refsing hennar með hliðsjón af því og ungum aldri hennar hæfilega ákveðin þannig, að hún sæti fangelsi í 1 mánuð, en eftur atvikum þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og falli niður að liðnum 2 árum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1991, sbr. lög nr. 22/1955.

    Ákærða greiði og krónur 80.000 í sekt og komi 6 daga fangelsi í stað hennar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

    Samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga ber að svipta ákærðu ökurétti í 6 mánuði frá deginum í dag að telja.

    Dæma ber ákærðu til að greiða 33.149 krónur í sakarkostnað.

    Af hálfu ákæruvaldsins fór með málið Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari.

DÓMSORÐ

Ákærða, Þóra Kjartansdóttir, sæti fangelsi í 1 mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og niður skal hún falla að liðnum 2 árum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.

Ákærða greiði 80.000 krónur í sekt til ríkissjóðs og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4ra vikna.

Ákærða er svipt ökurétti í 6 mánuði frá deginum í dag að telja.

Ákærða greiði 33.149 krónur  í sakarkostnað.

Guðmundur L. Jóhannesson