Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1/2007:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr)

gegn

Guðmundi Rúnari Sveinssyni

(10-2005-37692)

Ávana- og fíkniefni.

Sakfelldur fyrir hegningarlagabrot. Sæti fangelsi í 60 daga skilorðsbundið í 3 ár. Upptaka á fíkniefnum og skotvopni. Greiði sekt í ríkissjóð auk málsvarnarlauna.

Mál þetta sem dómtekið var 2. febrúar s.l. er með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum í Hafnarfirði 21. desember 2006 á hendur Guðmundi Rúnari Sveinssyni, kt. 000000-0000, Fannarfelli 6, Reykjavík, "fyrir eftirtalin brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, vopnalögum og umferðarlögum:

I. (10-2005-37692) Fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og vopnalögum, föstudaginn 30. september 2005, um kl. 13:31, að Kaplahrauni 12, Hafnarfirði, öðru bili frá vesturenda:

  1. Haft í vörslum sínum eftirtalin fíkniefni; 97,35 g af hassi, 20 stk. af LSD (Lysergyde), 0,05 g af maríhúana, 0,85 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 3,14 g af kannabisfræjum, allt efni sem ákærði geymdi í skjalaskáp á neðri hæð og 14,56 g af hassi, 7,37 g af kókaíni og 2,49 g af amfetamíni, allt efni sem ákærði geymdi á gólfi undir stórum hátalara og á gólfi á milli sófa og stóra hátalarans á efri hæð.
  2. Haft í vörslum sínum eftirtalin vopn:

    a)      Bruno ZKK 601, 222 cal. riffil, er hann sagðist hafa að láni en án þess að leggja fram skriflega heimild því til sönnunar.

    b)          Haglabyssu CBC nr. 1491899, hlaupvídd 12 og haglabyssu, Fabarm Ellegi nr. 536330, hlaupvídd 12, ásamt fimm skotbeltum af haglabyssuskotum, hlaupvídd 12, muni er hann geymdi eigi í læstum hirslum þar sem óviðkomandi næði ekki til þeirra en skotvopnin og skotfærin voru á bak við sófa á efri hæð húsnæðisins.

    II. (20-2006-852) Fyrir brot umferðarlagabrot, sunnudaginn 26. mars 2006, um kl. 16:58, ekið bifreiðinni VS-678, suður Norðurlandsveg við Tjarnarkot, Húnaþingi vestra, á 119 kílómetra hraða á klukkustund, að teknu tilliti til vikmarka, þar sem leyfður hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.

    Telst háttsemi ákærða í ákærulið I.1. varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985, sbr. lög nr. 68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 490/2001, reglugerð nr. 248/2002 og reglugerð nr. 848/2002. Telst háttsemi ákærða í ákærulið I.2.a. varða við 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998. Telst háttsemi ákærða í ákærulið I.2.b. varða við 1. og 2. mgr. 23. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998. Telst háttsemi ákærða í ákærulið II. varða við 2. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar. Þá er þess krafist að 2,49 g af amfetamíni, 111,91 g af hassi, 7,37 g af kókaíni, 0,05 g af maríhúana, 0,85 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 20 stk. af LSD sem lögreglan lagði hald á í þágu rannsóknar málsins, sbr. ákærulið I.1. verði gerð upptæk samkvæmt heimild í 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 68/2001, sbr. reglugerð nr. 233/2001. Þess er jafnframt krafist að ákærða verði gert að sæta upptöku á haldlögðum riffli, sem lögreglan lagði hald á við rannsókn máls, sbr. ákærulið I.2.a., sbr. 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998."

    Mál þetta er dæmt samkvæmt heimildarákvæði 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en með skýlausri játningu ákærða, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, telst sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega færð til refsiákvæða.

    Á árunum 1997-1998 var ákærða gerð þrívegis sektarrefsing fyrir brot á 37. og 71. gr. umferðarlaga og hann í hvert skipti sviptur ökurétti í 1 mánuð.  Þá var gerð við hann viðurlagaákvörðun á árinu 2000 og 2001 og var honum gert allt í allt að greiða 441.000 krónur í sekt fyrir brot gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni.

    Refsing ákærða þykir með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga og að því virtu að ákærður játaði brot sitt greiðlega, hann hefur tvívegis gerst sekur um samskonar brot og að nokkuð er liðið frá því að fíkniefnabrotin voru framin, hæfiega ákveðin fangelsi í 60 daga og þykir mega með vísun til þess að ákærði kveðst nú hafa söðlað um og sé hættur í óreglu og slitið sambandi við fyrri félaga sína sem hann var með í óreglunni, stundi fasta vinnu sbr. framlagt vottorð Kristins Ragnarssonar viðskiptafræðings og sé enn að sumu leyti í sambúð með Írisi Steindórsdóttur og sinnir börnum þeirra reglulega, þykir mega fresta fullnustu þessarar refsingar og falli hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærður almennt skilorð laga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.

    Ennfremur greiði ákærður 50.000 krónur í sekt og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4ra vikna.

    Þá ber ákærða samkvæmt 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 68/2001, sbr. reglugerð nr. 233/2001 að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum, sem og riffli með vísun í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 16/1998.

    Þá ber að dæma ákærða til að greiða sakarkostnað að fjárhæð 71.715 krónur og málsvarnarlaun skipaðs verjanda Jóns Egilssonar hdl., sem ákveðast 77.439 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

    Með málið fór af hálfu ákæruvaldsins Alda Hrönn Jóhannsdóttir, fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

DÓMSORÐ

Ákærður, Guðmundur Rúnar Sveinsson, sæti fangelsi í 60 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og niður skal hún falla að liðnum 3 árum haldi ákærði almennt skilorð samkvæmt 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.

Ákærður greiði 50.000 krónur í sekt og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd inann 4 vikna.

Ákærði sæti upptöku á 2,49 g af amfetamíni, 111,91 g af hassi, 7,37 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 20 stk. af LSD (Lysergyde) sem lagt var hald á í málinu. Ákærður sæti og upptöku á haldlögðum riffli.

Ákærður greiði  sakarkostnað að fjárhæð 149.204 krónur, þar af í málsvarnarlaun til skipaðs verjanda Jóns Egilssonar héraðsdómslögmanns, 77.439 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Guðmundur L. Jóhannesson