Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 3. október 2006.
Útdráttur
Sýknaður af kröfu ákæruvalds um brot á lyfjalögum.
Mál þetta, sem dómtekið var 12. september sl., er höfðað með ákæru Lögreglustjórans í Kópavogi 25. apríl 2006 og framhaldsákæru 8. júní 2006 gegn X, 000000-0000, G, Kópavogi. „fyrir brot gegn lyfjalögum, með því að hafa fimmtudaginn 24. nóvember 2005, á heimili sínu að G í Kópavogi, án leyfis til lyfjasölu selt tveimur nafngreindum mönnum, 10 Ritalin töflur, 3 Rivotril töflur, 3 Contalgin töflur og 5 Valium töflur. Telst þetta varða við 1. mgr. 20. gr., sbr. 2. mgr. 48. gr. lyfjalaga nr. 93,1994, sbr. lög nr. 55, 1995 nr. 10,1997 nr. 82,1998 og nr. 83/2004.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Af hálfu ákærða er aðallega krafist sýknu en til vara vægustu refsingar. Málskostnaðar er einnig krafist.
Með úrskurði 2. júní 2006 var frávísunarkröfu ákærða hrundið.
I.
Þann 24. nóvember 2005 kom á Lögreglustöðina í Kópavogi fréttastjóri fréttaskýringarþáttarins Kompás á NFS og afhenti lögreglu lyf sem hann sagði að fyrrverandi fíkill hefði keypt hjá ákærða. Kom fram hjá fréttastjóranum að tilgangurinn hafi verið að sýna fram á hve auðvelt væri að nálgast svokallað læknadóp og því hafi verið fengin fíkill til að kaupa lyfin hjá ákærða. Fréttastjórinn framvísaði eftirfarandi lyfjum: 10 töflur af Ritalin, 3 töflur af Rivotril, 3 töflur af Contalgin og 5 töflur af Valium.
Húsleit fór fram hjá ákærða að G í Kópavogi þann 25. nóvember 2005. Í þágu rannsóknar málsins voru ýmis lyf haldlögð hjá ákærða. Sama dag var einnig gerð húsleit að H í Kópavogi þar sem ákærði er heimagangur. Þar fundust astmalyf sem ákærði vísaði á.
Við rannsókn málsins kom í ljós að öll hin haldlögðu lyf höfðu verið ávísuð á ákærða. Samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu voru ávísaðir skammtar innan eðlilegra marka og ákærða því afhent lyfin.
Hjá lögreglu skýrði ákærði svo frá að hann væri lungnaþembusjúklingur og einnig með brjósklos. Hafði hann fengið ávísað lyfjum frá tveimur læknum vegna þessara veikinda sinna. Öll þau lyf sem lögreglan hafi haldlagt væru merkt honum og væru verkjalyf, ofnæmislyf eða lungnalyf. Ákærða var kynnt hjá lögreglu að sunnudaginn 27. nóvember 2005 hafi fréttaskýringarþátturinn Kompás á NFS sýnt atriði þar sem óþekktur aðili hafi keypt læknalyf af ákærða og hafi viðkomandi verið með falda myndavél á sér. Þessi maður hafi greitt 14.000 krónur fyrir lyfin. Ákærði kvaðst hafa séð fréttaskýringarþáttinn og sagði að sá sem hafi komið með myndavélina til sín hafi verið Q. Hann þekki Q til margra ára og þeir hafi hist mikið undanfarið ásamt konu sem heiti K. Hafi þau þrjú hists í þeim tilgangi að taka upp heimildarmynd um ævi K en hún eigi sér langa fíkniefnasögu. Ákveðið hafi verið að ákærði léki sölumann læknalyfja. Notuð hafi verið videóvél í eigu Q eða K. Ákærði kvaðst hins vegar ekki hafa gert sér grein fyrir að einnig hafi verið notuð falin myndavél. Þær töflur sem hafi verið notaðar hafi verið hluti af leikmunum í eigu Q og K. Töflurnar hafi verið afhentar honum fyrir upptöku til að málið liti raunverulega út og Q afhent honum 14.000 krónur fyrir töflurnar. Ákærði sagði að Q og K hafi verið með handrit til þess að styðjast við en ekki vissi hann hvort koma hafi átt myndinni á framfæri hjá sjónvarpi eða á öðrum vettvangi.
Vitnin Q og K sögðu hjá lögreglu að B hafi fengið þau til þess að fara með falda myndavél á heimili ákærða og hafi þetta einnig verið gert í samráði við fréttastjóra fréttaskýringarþáttarins Kompás. Þau sögðust bæði þekkja ákærða mjög vel og hafa keypt af honum læknalyf í gengum tíðina. Tilgangur þeirra með þessu hafi verið sá að reyna að fá ákærða til að hætta að selja fólki læknalyf.
Fyrir dómi skýrði ákærði á sama veg frá og hjá lögreglu. Vitnin Q og K skýrðu einnig á sama veg og hjá lögreglu í fyrri skýrslu sinni fyrir dómi. Eftir að þau höfðu gefið skýrslu fyrir dómi var gert stutt réttarhlé fyrir málflutning. Er málflutningur skyldi hefjast óskuð vitnin eftir að koma aftur fyrir dóm og gefa nýja skýrslu. Þá drógu þau í land með allt sem þau höfðu áður sagt varðandi samskipti þeirra við ákærða. Sögðu þau nú að frásögn ákærða af atburðarás væri rétt. Þau þrjú hafi öll sammælst um að taka upp þátt um líf K sem hafi í mörg ár verið eiturlyfjasjúklingur. Hafi ákærði verið í hlutverki sölumanns læknalyfja og hafi allur atburðurinn verið sviðsettur í þessum tilgangi. Aðspurð um breyttan framburð sinn sögðu þau að þau vildu nú segja sannleikann í málinu.
II.
Samkvæmt 1. mgr. 48. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinbera mála skal dómur reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi. Vitnin tvö hafa dregið framburð sinn til baka fyrir dómi og verður því við það að miða að atburður sá, sem ákært er fyrir, hafi verið sviðsettur í samráði við ákærða. Eru því ekki komin fram óyggjandi gögn um sekt sakbornings og þykir því varhugavert með vísan til 46. gr. sömu laga að telja sök hans sannaða. Skal ákærði því sýkn að þeirri háttsemi sem hann er borinn í ákæru.
Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 verður allur sakarkostnaður greiddur úr ríkissjóði sem eru málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Bergsteins Georgssonar hdl., 100.000 krónur.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ:
Ákærði, X, er sýkn af kröfum ákæruvalds í málinu.
Málsvarnarlaun skipaðs verjanda, Bergsteins Georgssonar hdl., 100.000 krónur, greiðast úr ríkissjóði.
Gunnar Aðalsteinsson