Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 29. maí 2006.
Mál nr. S-539/2006:
Ákæruvaldið
(Anna Svava Þórðardóttir ftr)
gegn
Sveini Ævari Sveinssyni
Ólafi Þór Sigurðssyni
Ár 2006, mánudaginn 29. maí, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjaness, sem háð er í
dómhúsinu að Fjarðargötu 9, Hafnarfirði af Guðmundi L. Jóhannessyni, kveðinn
upp dómur í málinu nr. S-539/2006: Ákæruvaldið gegn Sveini Ævari Sveinssyni
og Ólafi Þór Sigurðssyni, sem dómtekið var 11. maí s.l.
Mál þetta er með ákæru útgefinni 6. apríl 2006, höfðað gegn Sveini Ævari
Sveinssyni, kt. 000000-0000, Nónhæð 4, Garðabæ, og Ólafi Þór Sigurðssyni, kt.
000000-0000, Nónhæð 2, Garðabæ fyrir eftirtalin brot:
Útdráttur
X dæmdur í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir. Ákærði Ólafur var gerð 250.000 króna sekt fyrir líkamsárás, brot gegn umferðarlögum og vörslu ávana- og fíkniefna.
Ár 2006, mánudaginn 29. maí, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjaness, sem háð er í dómhúsinu að Fjarðargötu 9, Hafnarfirði af Guðmundi L. Jóhannessyni, kveðinn upp dómur í málinu nr. S-539/2006: Ákæruvaldið gegn Sveini Ævari Sveinssyni og Ólafi Þór Sigurðssyni, sem dómtekið var 11. maí s.l. Mál þetta er með ákæru útgefinni 6. apríl 2006, höfðað gegn Sveini Ævari Sveinssyni, kt. 000000-0000, Nónhæð 4, Garðabæ, og Ólafi Þór Sigurðssyni, kt. 000000-0000, Nónhæð 2, Garðabæ fyrir eftirtalin brot:
I. (m. 36-2005-6437) "fyrir líkamsárás með því að hafa aðfararnótt laugardagsins 23. júlí 2005, um kl. 03:00, við Bæjarbraut í Garðabæ, ráðist á Magna Þórarinsson, kt. 000000-0000, ákærði Ólafur Þór slegið hann í höfuð og búk og ákærði Sveinn Ævar sparkað í búk hans þar sem hann lá í jörðinni með þeim afleiðingum að hann hlaut um 2 cm langan skurð undir hægra auga og yfirborðsáverka í andliti.
Telst ofangreind háttsemi ákærðu varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 20/1981.
II. (m. 36-2005-11103) gegn ákærða Ólafi Þór fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa aðfararnótt sunnudagsins 27. nóvember 2005, um kl. 05:27 ekið bifreiðinni VV-396 yfir gatnamót Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar í Garðabæ gegn rauðu ljósi og fyrir að hafa í umrætt sinn haft í vörslum sínum 0,47 gr. af tóbaksblönduðu kannabisefni sem ákærði henti út um glugga bifreiðarinnar er hann varð var við lögreglu.
Telst ofangreind háttsemi ákærða varða við 5. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og 2. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, lög nr. 13/1985, lög nr. 10/1997 og lög nr. 68/2001.
III. (36-2005-11561) gegn ákærða Sveini Ævari fyrir líkamsárás með því að hafa aðfararnótt laugardagsins 10. desember 2005, um kl. 03:00, við Smiðsbúð í Garðabæ, hrint Ingibjörgu Helgu Arnþórsdóttur, kt. 000000-0000, þannig að hún féll í jörðina og sparkað í höfuð hennar þar sem hún lá á jörðinni með þeim afleiðingum að hún hlaut yfirborðsáverka á höfði og tognun á hálshrygg og vinstri öxl. Telst ofangreind háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegnignarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 20/1981.
IV. (36-2006-279) gegn ákærða Ólafi Þór fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa aðfararnótt sunnudagsins 8. janúar 2006, um kl. 02:35, haft í vörslum sínum 1,93 gr. af tóbaksblönduðu kannabisefni sem hann geymdi í hanskahólfi bifreiðarinnar YI-816 eftir að lögreglan hafði afskipti af ákærða sem ökumanni bifreiðarinnar við Garðatorg í Garðabæ.
Telst ofangreind háttsemi ákærða varða við 2. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, lög nr. 13/1985, lög nr. 10/1997 og lög nr. 68/2001.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og að ákærði Ólafur Þór sæti upptöku á samtals 2,4 gr. af tóbaksblönduðu kannabisefni sbr. sem lögreglan lagði hald á í þágu rannsóknar málanna sbr. ákæruliði II og IV skv. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og nr. 68/2001 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001."
Mál þetta er dæmt samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 að því er varðar I., II. og IV. kafla ákæru, en með skýlausri játningu ákærðu, sem er í samræmi við rannsóknargögn málsins er sannað að þeir hafa gerst sekir um þargreind brot, sem rétt eru færð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærður Sveinn Ævar kvaðst ekki muna mjög glöggt eftir atviki sem lýst er í III. kafla ákæru, þar sem hann hafi verið mjög drukkinn, en hann kannaðist við að hafa lent í útistöðum við Ingibjörgu Helgu og að hafa slegið hana og hún slegið á móti, en hann mundi ekki eftir að hafa fellt hana í jörðina og að hafa sparkað í hana.
Málsatvik í þessum þætti málsins eru þau, að laugardaginn 10. desember 2005, kom Ingibjörg Helga Arnþórsdóttir, Dvergabakka 26, Reykjavík, kt. 000000-0000 á lögreglustöðina í Hafnarfirði og kærði líkamsárás, sem hún hefði orðið fyrir nóttina á undan í Garðabæ. Hún sagðist hafa verið stödd við Bónus Videó í Garðabæ í all nokkrum hóp ungmenna, er veist hafi að henni piltur, sem hún sagðist vita að héti Ólafur, fæddur 1988 og væri í Fjölbrautarskóla Garðabæjar. Hann hafi fyrst veist að henni og farið að sparka í hana liggjandi og sparkað í höfuð hennar og búk og hafi tekið þátt í árásinni tveir piltar sem hún vissi ekki deili á og hafi árásinni ekki linnt fyrr en nærstaddir hafi gengið á milli. Ingibjörg sagðist vera aum eftir árásina og með kúlu á höfði.
Hún hafi farið á Slysa- og bráðadeild Landspítalans sama dag, þar sem hún var skoðuð og greind.
Í niðurstöðu læknisvottorðs Einars Hjaltasonar læknis, segir:
"Ingibjörg verður fyrir árás fyrir utan Bónus Videó í Garðabæ, segir að maður sem hún þekkti ekki hafi ráðist á sig. Hann hafi slegið hana og hrint henni í gras sem þarna var. Kvartar um verki í höfði, hálsi, herðum og öxlum. Við skoðun var hún með marbletti á höfði vi. parietal svæði og einkenni sem benda til vægrar tognunar í hálsi og vinstri öxl.Áverkarnir geta komið saman við lýsingu atburðar. Þeir eru ekki alvarlegir og reikna má með að þeir hafi horfið á 1-2 vikum."
Ákærður bar hér fyrir dómi við aðalmeðferð málsins, að hann hafi í greint sinn verið mjög drukkinn. Hann hafi verið búinn að drekka um tvær kippur af bjór og muni eins og í móðu að hafa lent í átökum við Ingibjörgu Helgu, en það séu sekúndubrot sem hann muni. Hann myndi ekki eftir því að hafa sparkað í Ingibjörgu, eftir að hún var fallin á jörðina, en kvaðst hafa heyrt sögu um að tveir aðrir hafi sparkað í hana, en minntist þess ekki að hafa séð það. Hann vefengdi frásögn vitna um að hann hafi verið með húfu og undan húfunni hafi komið svart hár með geli í. Hann kvaðst aldrei vera með húfu. Hann kvaðst nú hafa tekið sig á í sambandi við neyslu áfengis og hegðunarvandamála í því sambandi. Hann kvaðst ekki hafa farið í áfengismeðferð, en áður og eftir að hann varð 18 ára hafi kona frá barnaverndarnefnd fylgst með honum og verið honum til ráðgjafar og hann einnig fengið sálfræðiaðstoð og kvaðst hann nú hafa náð stjórn á hegðun sinni.
Kærandinn Ingibjörg Helga Arnþórsdóttir, hefur borið vitni hjá lögreglu og hér fyrir dómi. Fram kom hjá vitninu að umrætt sinn aðfararnótt 10. desember s.l. hafi það ætlað í samkvæmi í Gistiheimilinu Felli að Smiðsbúð 3, Garðabæ, en er það kom þangað hafði samkvæmið leyst upp og fólkið sem hafði verið þar, sem það þekkti ekki, gengið þaðan að Bónus Video og það gengið með. Þar hafi verið hópur af ungu fólki sem stóð saman í hring og var að ræða málin. Það kvað pilt sem stóð við hliðina á því allt í einu hafa sagt, " hei þú ert mansonisti" og hún þá kváð við og spurt hvað hann ætti við. Hann hafi svo hrint henni og byrjað að sparka í hana þar sem hún lá á jörðinni og það kvað tvo aðra stráka hafa verið með piltinum og hafi þeir og sparkað í hana eða a.m.k. annar þeirra. Vitnið kvaðst hafa fengið spörkin í höfuðið og efri hluta líkamans og kvaðst það hafa reynt að verja höfuðið með því að bera hendurnar fyrir. Vitnið kvaðst ekki geta fullyrt að spörkin hafi verið föst, en það hafa alla vega marist og fengið kúlu á höfuðið. Vitnið kvaðst nú vera búin að ná sér, en það hefði þó hræðslukennd gagnvart ókunnugum.
Vitnið Daniella Daníelsdóttir kvaðst hafa verið ásamt vinafólki í samkvæmi í Gistiheimilinu Felli í greint sinn, en öllum verið vísað út úr samkvæminu af lögreglu vegna hávaða. Vitnið hafi þá ásamt fleira ungu fólki farið út og verið þarna við Bínus Video, er hún hafi séð að einhver strákur er verið hafi klæddur í bláar gallabuxur með húfu á höfði hafi tekið sig til og farið að hrinda Ingibjörgu Helgu Arnþórsdóttur auk þess, sem hann hafi rifið í hár hennar og kýlt hana. Hjá lögreglu sagðist vitnið ekki hafa séð hvort strákurinn hafi sparkað í Ingibjörgu eftir að hafa hrint henni í jörðina. Hér fyrir dómi var það visst um að strákurinn sem það taldi vera ákærða, hafi sparkað í Ingibjörgu, en taldi ekki að vinir hans, sem voru þarna hjá hafi sparkað líka. Það kvað árásarmanninn hafa verið með derhúfu og sítt hár.
Vitnið Ásta Camilla Harðardóttir hafði farið í samkvæmi í Gistiheimilinu Felli við Smiðsbúð 3 í Garðabæ í greint sinn, en eftir að það hafði verið leyst upp hafði það og unnusti þess ekið á brott, en stuttu síðar komið til baka og ekið að þar sem margt ungt fólk var framan við Bónus Video. Vitnið kvaðst hafa séð að Ingibjörg Helga stóð í þessum hóp og var að ræða við einhver ungmenni, þegar ungur maður hafi allt í einu hrint henni í jörðina og svo sparkað í höfuð hennar af fullum krafti, svo sem vitnið lýsti þessu hjá lögreglu. Vitnið lýsti manninum þannig, að hann hafi verið nokkuð hávaxinn, klæddur í dökkar gallabuxur og dökkan mosagrænan bol. Vitnið vissi ekki um nafn piltsins, en kvað hann hafa verið með húfu og dökkt hárið staðið undan húfunni. Vitnið hafði þá farið úr bifreiðinni, sem það hafði stöðvað nokkrum metrum frá og hafði það og kærasti þess hlaupið út og skilið þau í sundur. Vitnið sagði hér fyrir dómi, að það hafi verið tveir menn sem staðið hafi að árásinni og var það þó ekki visst um hvor hafi hrint Ingibjörgu, en ákærður hafi verið annar þessara manna og eftir að Ingibjörg var fallin niður í jörðina, hafi þeir sparkað í hana og bak hennar og hafi annar mannanna örugglega verið ákærði. Það kvað Ingibjörgu hafa reynt að verja sig með því að halda höndum fyrir höfuðið. Nánar aðspurt var vitnið ekki visst um, að ákærður hafi verið með húfu.
Vitnið Viktor Hrafn Eianrsson, kt. 000000-0000, Kjarrmóum 50, Garðabæ, hafði verið með ákærða þarna við Bónus Video í greint sinn og kvaðst hafa séð ákærða og Ingibjörgu slá hvort annað og það orðið slagsmál. Það kvaðst ekki hafa séð Ingibjörgu falla í jörðina né að hún yrði fyrir spörkum. Það kvaðst hafa verið drukkið og það farið strax í burtu eftir að kýlingar áttu sér stað. Það taldi að það hafi hellt bjór yfir Ingibjörgu.
Vitnið Unnar Helgi Daníelsson, kt. 000000-0000, Lækjasmára 88, Kópavogi kvaðst hafa komið þarna í hópinn og farið til ákærða, en það kvaðst hafa verið að koma frá Gistiheimilinu Felli, þar sem hafi verið fyllerí hjá þeim sem þar voru og þar hafi Ingibjörg og verið. Það kvaðst hafa verið ódrukkið. Það kvað Ingibjörgu hafa komið þarna út úr bifreið með látum og spurt hver hafi verið að lemja vini hennar. Vitnið kvað hana hafa verið reiða og hún verið að leita sér að veseni og hellt bjór yfir það. Það kvaðst hafa verið við hliðina á ákærða og ákærður þá ýtt við henni og hún þá slegið hann og hann slegið á móti og þetta svo farið út í ryskingar. Það kvaðst hafa haldið að hún væri strákur, en hún hafi verið máluð eins og rokkari. Það kvað vin hennar hafa haldið á kampavínsflösku og hún hafi girt niður buxurnar og öskrað eins og hún væri rugluð og gæti þá hafa fallið í jörðina. Það kvaðst ekki hafa orðið vart við að þá hafi verið sparkað í hana, en það kannast ekki við að hafa sjálft sparkað í hana, né hafi ákærður gert það. Það kvað svo aðra stúlku hafa komið að til að stöðva átökin.
Niðurstöður.
Þegar virtir eru vættir vitna og framburður ákærða sjálfs er ljóst að hann lendir í átökum við Ingibjörgu Helgu og í þeim átökum fellir hann hana eða hrindir í jörðina.
Þá þykir og sannað með framburði vitnanna Ingibjargar Helgu, Daniellu og Ástu Camillu eða tveir menn hafi sparkað í höfuð Ingibjargar og efri hluta líkamans og ákærður Sveinn verið annar þeirra.
Framburður vitnisins Unnars Helga er í algjöru ósamræmi við rannsóknargögn málsins og virðist gæta þar ruglings eða misskilnings og er ekki lagt upp úr því í málinu.
Ákærður Sveinn þykir því hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefið að sök í III. kafla ákæru, en líta verður til þess, að hann hefur ásamt öðrum valdið Ingibjörgu Helgu þargreindum meiðslum og er verknaðurinn felldur undir 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga.
Frestað var ákæru á hendur báðum ákærðu skilorðsbundið í 1 ár 28. janúar 2005 fyrir brot gegn 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga og 48. gr. umferðarlaga, en ekki er fram komið að þeir hafi gerst brotlegir við önnur refsilög.
Refsing beggja ákærðu er ákveðin með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærða Sveini Ævari er gerð refsing fyrir atferlið sem lýst er í I. og III. kafla ákæru og verður það metið til þyngingar refsingar, að ákærði sparkar tvívegis í liggjandi mann, sem er lítilmannlegt og í síðara skiptið í höfuð stúlkunnar Ingibjargar Helgu, sem getur verið mjög hættulegt auk þess að vera fólskulegt, en hins vegar ber að líta til ungs aldurs ákærða og þykir refsing ákærða að þessu virtu hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði.
Rétt þykir þegar litið, er til þess að ákærður Sveinn var ekki fullra 18 ára er hann framdi verknaðinn og hann hefur leitað sér sálfræðilegrar aðstoðar vegna hegðunarvandamála og misneyslu áfengis, að fresta fullnustu refsingarinanr og falli hún niður að liðnum 2 árum haldi ákærður almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Refsing ákærða Ólafs Þórs fyrir þau brot sem greind eru í I., II. og IV. kafla ákæru, þykir hæfilega ákveðin 250.000 króna sekt og komi 18 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4ra vikna.
Samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og nr. 68/2001 og 2. mgr. 14. reglugerðar nr. 23372001 sæti ákærði Ólafur Þór upptöku á 2,4 gr. af tóbaksblönduðu kannabisefni.
Dæma ber ákærðu til að greiða saman 23.200 krónur í sakarkostnað og ákærða Svein Ævar til að greiða auk þess 13.200 krónur í sakarkostnað, en annan kostnað leiddi ekki af málinu.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Anna Svava Þórðardóttir fulltrúi sýslumannsins í Hafnarfirði.
DÓMSORÐ
Ákærður, Sveinn Ævar Sveinsson, sæti fangelsi í 3 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og niður skal hún falla að liðnum 2 árum haldi ákærður almennt skilorð samkvæmt 57. gr almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærður, Ólafur Þór Sigurðsson, greiði 250.000 krónur í sekt og komi 18 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4ra vikna.
Ákærður, Ólafur Þór sæti upptöku á 2,4 gr. af tóbaksblönduðu kannabisefni.
Ákærðu greiði óskipt saman 23.200 krónur í sakarkostnað og auk þess greiði ákærður, Sveinn Ævar, 13.200 krónur í sakarkostnað.
Guðmundur L. Jóhannesson