Héraðsdómur Norðurlands vestra
Dómur 6. mars 2008.
Mál nr. S-22/2008:
S-22/2008:
Ákæruvaldið
(Birkir Már Magnússon fulltrúi)
gegn
Ingu Rún Pálmadóttur
I
(sjálf)
Útdráttur
Kona sem sakfelld var fyrir vörslur fíkniefna dæmd í skilorðsbundið fangelsi. Eldri skilorðsdómur tekinn upp og dæmdur með.
I
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 26. febrúar sl., er höfðað af lögreglustjóranum á Sauðárkróki 9. janúar 2008 á hendur Ingu Rún Pálmadóttur, fæddri 25. september 1961, til heimilis að Sæmundargötu 9, Sauðárkróki, ,,fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa um hálfsjöleytið að kvöldi miðvikudagsins 14. nóvember 2007, er lögreglan gerði húsleit á heimili ákærðu að Sæmundargötu 9 á Sauðárkróki, haft í vörslum sínum samtals 239,77 grömm af kannabislaufum og 1,68 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni, en efnin fundust í eldhúsi, þvottahúsi, svefnherbergi og baðherbergi íbúðarinnar.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með áorðnum breytingum, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 12831) samkvæmt. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.”
II
Ákærða sótti þing þegar málið var þingfest þann 26. febrúar sl. og játaði skýlaust háttsemi þá sem henni er í ákæru gefin að sök, jafnframt gerði ákærða grein fyrir högum sínum. Með játningu ákærðu sem er í samræmi við önnur gögn málsins telst sekt ákærðu fyllilega sönnuð en háttsemi hennar er réttilega færð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærða á að baki allnokkurn sakarferil sem nær aftur til ársins 1985. Það ár var hún dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið varðhald fyrir skjalafals. Á árinu 2001 gekkst hún tvisvar undir greiðslu sektar fyrir þjófnað. Í byrjun árs 2002 gekkst ákærða undir greiðslu sektar vegna brots gegn umferðarlögum og var þá svipt ökurétti í þrjá mánuði. Hinn 10. maí 2002 var ákærða dæmd til greiðslu sektar fyrir þjófnað. Í júnímánuði þetta ár var henni gert að greiða sekt fyrir brot gegn umferðarlögum. Síðar í sama mánuði gekkst ákærða undir greiðslu sektar fyrir þjófnað. Í mars 2004 var ákærða dæmd til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Hinn 1. október 2004 var ákærða dæmd í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár fyrir þjófnað. Í desember þetta sama ár gekkst ákærða undir greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Hinn 20. janúar 2005 var ákærða dæmd í 60 daga fangelsi fyrir þjófnað en refsingin var skilorðsbundin til tveggja ára. Hinn 5. apríl 2005 var ákærða dæmd til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Í desember 2006 var ákærða dæmd til greiðslu sektar jafnframt því sem hún var svipt ökurétti í 18 mánuði fyrir ölvun við akstur. Loks var ákærða hinn 19. september 2007 dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
III
Við ákvörðun refsingar ákærðu ber að horfa til þess að hún hefur skýlaust játað brot sitt en einnig verður að horfa til sakarferils hennar, sérstaklega til dómsins frá 19. september 2007 en ákærða hefur með háttsemi sinni rofið skilorð þess dóms. Með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ber að taka þann dóm upp og dæma það mál með máli því sem hér er til umfjöllunar og tiltaka refsinguna í einu lagi eftir reglum 77. gr. nefndra hegningarlaga. Eins og í ákæru greinir fannst allnokkurt magn fíkniefna, einkum kannabislaufa, í fórum ákærðu án þess þó að nokkuð sé vitað um styrkleika efnanna. Að öllu þessu virtu þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Rétt þykir, eins og hér stendur á, með heimild í nefndri 60. gr. að skilorðsbinda refsinguna og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæruskjali, ber að gera upptæk fíkniefni, svo sem í dómsorði greinir.
Sakarkostnaður hefur ekki fallið til við meðferð máls þessa.
Málið sótti Birkir Már Magnússon fulltrúi lögreglustjórans á Sauðárkróki.
Halldór Halldórsson dómstjóri kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ
Ákærða Inga Rún Pálmadóttir sæti fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu refsingarinnar er frestað og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga 22/1955.
Upptæk eru 239,77 grömm af kannabislaufum og 1,68 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem haldlögð voru við rannsókn málsins.
Halldór Halldórsson.