Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands vestra

Mál nr. S-18/2008:

S-18/2008:

Ákæruvaldið

(Birkir Már Magnússon fulltrúi)

gegn

Ísaki Sigurjónssyni

I

(sjálfur)

Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Ávana- og fíkniefni.

Karlmanni gert að greiða sekt fyrir vörslur og sölu fíkniefna

I

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 28. febrúar sl., er höfðað af lögreglustjóranum á Sauðárkróki 16. janúar 2008 á hendur Ísaki Sigurjónssyni, fæddum 31. maí 1988, til heimilis að Kirkjutorgi 5, Sauðárkróki,  „ fyrir fíkniefnalagabrot:

  1. Með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 22. desember 2007 haft í vörslum sínum í söluskyni 57,86 grömm af hassi sem fundust við leit lögreglu á milli sæta í bifreiðinni PS-998, eftir að bifreiðin hafði verið stöðvuð við umferðareftirlit, en ákærði var farþegi í bifreiðinni.
  2. Með því að hafa á tímabilinu 20.-22. desember 2007 selt um það bil 12 grömm af hassi til ónafngreindra einstaklinga á Sauðárkróki fyrir samtals 38.000,- krónur.

    Brot ákærða teljast varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með áorðnum breytingum, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar. Þess er jafnframt krafist að ofangreind fíkniefni, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins (efnaskrárnr. 13084), verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Ennfremur er þess krafist að ákærða verði gert að sæta upptöku á andvirði ætlaðrar fíkniefnasölu sinnar að fjárhæð kr. 38.000,-, skv. heimild í 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, en umræddir peningar fundust í reiðufé við líkamsleit á ákærða.“

II

Ákærði sótti þing þegar málið var þingfest hinn 28. febrúar sl. og játaði skýlaust háttsemi þá sem honum er í ákæru gefin að sök. Ákærði gerði þá grein fyrir högum sínum, kvaðst vera á sjó og vera að taka á sínum málum. Með játningu ákærða sem er í samræmi við önnur gögn málsins telst sekt ákærða fyllilega sönnuð en háttsemi hans er réttilega færð til refsiákvæða í ákæru.

Samkvæmt vottorði Sakaskrár ríkisins hefur ákærði tvisvar áður sætt refsingu. Í maí 2006 var ákærði sviptur ökurétti í tíu mánuði og gert að greiða sekt fyrir brot gegn umferðarlögum. Í október þetta sama ár gekkst hann undir greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

Ákærði er nú sakfelldur fyrir að hafa haft undir höndum nokkurt magn fíkniefna sem hann ætlaði að selja öðrum. Við ákvörðun refsingar ber að horfa til þessa. Þá verður að taka tillit til þess að hann hefur skýlaust játað brot sitt. Með hliðsjón af þessu þykir refsing hans hæfilega ákveðin 250.000 króna sekt til ríkissjóðs en 18 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna. Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæruskjali, ber að gera upptæk fíkniefni og haldlagða peninga, svo sem í dómsorði greinir. Samkvæmt yfirliti rannsóknara hefur sakarkostnaður ekki fallið á mál þetta og enginn kostnaður hlaust af meðferð þess fyrir dómi.

Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Birkir Már Magnússon fulltrúi lögreglustjórans á Sauðárkróki.

Halldór Halldórsson dómstjóri kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ

Ákærði Ísak Sigurjónsson, greiði 250.000 króna sekt til ríkissjóðs en 18 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.

Sakarkostnaður hefur ekki fallið til við mál þetta.

Upptæk eru 57,86 grömm af hassi og 38.000 krónur í peningum sem hald var lagt á við rannsókn málsins.

Halldór Halldórsson.