Héraðsdómur Norðurlands vestra
Dómur 19. mars 2007.
Mál nr. S-71/2007:
Ákæruvaldið
(Birkir Már Magnússon fulltrúi)
gegn
Lúðvík Frey Sverrissyni
I
(sjálfur)
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur fyrir þjófnað. Gert að greiða 30.000 króna sekt.
I
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 13. mars sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Sauðárkróki hinn 19. febrúar 2007 á hendur Lúðvík Frey Sverrissyni, fæddum 2. janúar 1987, ,,fyrir þjófnað, með því að hafa aðfararnótt laugardagsins 16. september 2006 farið inn í mötuneyti heimavistar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki og tekið þaðan ófrjálsri hendi örbylgjuofn af gerðinni Roadstar, sem ákærði hafði á brott með sér úr byggingunni.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í málinu gerir Guðmundur Tómasson, kt. 260643-4529, fyrir hönd Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, kröfu á hendur ákærða að fjárhæð 8.361,-. “
II
Ákærði sótti þing þegar málið var þingfest þann 13. mars sl. og játaði skýlaust háttsemi þá sem honum er í ákæru gefin að sök. Með játningu ákærða sem er í samræmi við önnur gögn málsins telst sekt ákærða fyllilega sönnuð en háttsemi hans er réttilega færð til refsiákvæða í ákæru.
Refsing ákærða, sem hefur ekki áður sætt refsingu, þykir hæfilega ákveðin 30.000 króna sekt til ríkissjóðs en 4 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna. Við ákvörðun refsingar er horft til skýlausrar játningar ákærð, þess tjóns sem af broti hans hlaust og þess að hann hefur samþykkt að bæta tjónið.
Sakarkostnaður hefur ekki fallið á málið.
Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Birkir Már Magnússon fulltrúi lögreglustjórans á Sauðárkróki.
Halldór Halldórsson dómstjóri kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ
Ákærði Lúðvík Freyr Sverrisson greiði 30.000 króna sekt til ríkissjóðs en 4 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan 4 vikna.
Ákærði greiði Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra 8.361 krónu.
Sakarkostnaður féll ekki á mál þetta.
Halldór Halldórsson