Héraðsdómur Norðurlands vestra
Dómur 15. júní 2007.
Mál nr. S-122/2007:
S-122/2007:
Ákæruvaldið
(Einar Ingimundarson fulltrúi)
gegn
Sturlaugi Fannari
Þorsteinssyni
I
(enginn)
Lykilorð
Svipting ökuréttar. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur fyrir akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.
I
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 12. þessa mánaðar, er höfðað af lögreglustjóranum á Akureyri 7. maí 2007 á hendur Sturlaugi Fannari Þorsteinssyni, fæddum 25. júlí 1986, til heimilis að Laugarvegi 7, Siglufirði, ,,fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 10. febrúar 2007, ekið bifreiðinni PX-803, undir áhrifum fíkniefna (amfetamín 60 ng/ml., MDMA 75 ng/ml. og tetrahýdrókannabínól 1,9 ng/ml), frá bænum Stóru Reykjum í Fljótum áleiðis til Siglufjarðar, uns lögreglan stöðvaði akstur hans vestan við Strákagöng, skammt frá Siglufirði Telst brot þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og sviptingar ökuréttar, samkvæmt 101., gr. og 1. mgr., sbr. 4. mgr. 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66, 2006.
II
Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll þegar málið var tekið fyrir 12. þessa mánaðar. Málið er því dæmt með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 enda er þess getið í fyrirkalli sem birt var fyrir ákærða sjálfum á lögmætan hátt 21. maí sl. að svo mætti fara með málið.
Þar sem ákærði hefur ekki látið málið til sín taka verður með vísan til þess sem að framan er rakið að líta svo á að hann viðurkenni háttsemi þá sem honum er í ákæru gefin að sök og telst sök hans nægilega sönnuð enda er ákæran í samræmi við gögn málsins og brot hans þar réttilega fært til refsiákvæða.
Ákærði hefur tvisvar áður sætt refsingu. Hinn 5. maí 2006 var hann dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn umferðarlögum og sviptur ökurétti í þrjá mánuði.
Hinn 17. nóvember 2006 gekkst hann undir greiðslu sektar vegna brots gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þessi brot hafa hins vegar ekki áhrif á niðurstöðu þessa máls.
Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 60.000 króna sekt til ríkissjóðs en 6 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan 4 vikna frá birtingu dómsins að telja. Þá er ákærði sviptur ökurétti í fjóra mánuði frá sama tímamarki.
Með hliðsjón af niðurstöðu málsins verður ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar sem er samkvæmt yfirliti rannsóknara 138.440 krónur en enginn sakarkostnaður hefur bæst við málið við meðferð þess hér fyrir dómi.
Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Einar Ingimundarson fulltrúi lögreglustjórans á Akureyri.
Halldór Halldórsson dómstjóri kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ
Ákærði, Sturlaugur Fannar Þorsteinsson, greiði 60.000 króna sekt til ríkissjóðs en 6 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan 4 vikna frá birtingu dómsins.
Ákærði er sviptur ökurétti í fjóra mánuði frá birtingu dómsins.
Ákærði greiði sakarkostnað að fjárhæð 138.440 krónur.
Halldór Halldórsson