Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-523/2024:

Ákæruvaldið

(Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Guðrúnu Björgu Elínardóttur

(Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður)

Akstur sviptur ökurétti.

Ákærða sakfelld fyrir akstur svipt ökurétti.

Dómur

Mál þetta, sem var dómtekið í gær, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, 2. desember 2024, á hendur Guðrúnu Björgu Elínardóttur, kt. […] […], […], „fyrir umferðarlagabrot með því að hafa miðvikudaginn 27. nóvember 2024, ekið bifreiðinni […], svipt ökurétti austur Þverbrekku og norður Hlíðarveg, Fjallabyggð, þar sem lögregla stöðvaðið akstur hennar við Hlíðarveg […].“

Í ákæru er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og þess krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá krefst hún þess að skipuðum verjanda hennar verði ákveðin hæfileg málsvarnarlaun sem greiðist úr ríkissjóði.

Ákærða hefur komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru. Með játningu hennar, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að hún hafi gerst sek um þá háttsemi sem í ákæru er lýst og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008.

Samkvæmt sakavottorði ákærðu hefur hún fjórum sinnum gengist undir sátt um greiðslu sektar vegna umferðarlagabrota og þar af í tvígang ekið svipt ökurétti. Nánar tiltekið gekkst hún undir sátt 6. apríl 2020 um greiðslu 90.000 króna sektar og sviptingu ökuréttar í fjóra mánuði frá þeim degi. Þá gekkst hún undir sátt 24. ágúst 2020 um greiðslu sektar að fjárhæð 130.000 krónur fyrir hraðakstur og akstur svipt ökurétti. Þá gerði hún sátt 2. febrúar 2024 um greiðslu sektar að fjárhæð 180.000 krónur og sviptingu ökuréttar í 18 mánuði frá 1. febrúar 2024, fyrir ölvunarakstur.

Í máli þessu hefur ákærða játað að hafa ekið bifreið 27. nóvember sl., en þá var í gildi ökuréttarsvipting sú sem hún gekkst undir 2. febrúar sl. Í samræmi við sakavottorð hennar sem að framan er rakið verður hún nú dæmd til refsingar fyrir að hafa í þriðja sinn ekið bifreið svipt ökurétti. Hæfileg refsing ákærðu telst því vera 30 daga fangelsi og er það í samræmi við langa dómvenju í málum af þessu tagi. Ekki er tilefni til að skilorðsbinda refsinguna.

Ákærða greiði sakarkostnað að fjárhæð 128.960 krónur sem er þóknun skipaðs verjanda hennar Júlíar Óskar Antonsdóttur lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin framangreind fjárhæð og er virðisaukaskattur þar meðtalinn. Halldór Björnsson héraðsdómari kveður upp dóminn.

D ó m s o r ð :

Ákærða, Guðrún Björg Elínardóttir, sæti fangelsi í 30 daga. Ákærða greiði 128.960 krónur í sakarkostnað, sem er þóknun skipaðs verjanda hennar, Júlíar Óskar Antonsdóttur lögmanns og er virðisaukaskattur þar meðtalinn.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.