Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-477/2020:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

Sigríði Sif Gunnarsdóttur

(Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður)

Líkamsárás.

Ákærða sakfelld fyrir líkamsárás.

Dómur

Mál þetta, sem var dómtekið í gær, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 7. september 2020, á hendur Sigríði Sif Gunnarsdóttur, kt. […], […], Dalvík, „fyrir líkamsárás, með því að aðfaranótt laugardagsins 13. júní 2020, ráðist að A, kt. […], við heitan pott við smáhýsi að Vegamótum á Dalvík, og skellti henni í pottinn og síðan bitið hana í ennið, framhandlegg hægri handar, vinstri augabrún og vinstra kinnbein. Af þessu hlaut A mar á báðum herðablöðum, mar á innanverðum hægra fótlegg, bit/mar á enni, vinstra hluta andlits, hægra framhandlegg og báðum höndum.

Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar.“

Af hálfu ákærðu er þess krafist að henni verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar til handa skipuðum verjanda.

Sækjandi leiðrétti ákæru að því leyti að í stað orðanna „skellti henni í pottinn“ kemur „ráðist á hana“. Ákærða hefur komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru svo breyttri. Með játningu hennar, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að hún hafi gerst sek um þá háttsemi sem í ákæru er lýst og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008.

Ákærða hefur hreinan sakaferil. Við ákvörðun refsingar verður litið til skýlausrar játningar en jafnframt eðli brotsins. Refsing ákærðu er ákveðin fangelsi í 45 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið, eins og nánar greinir í dómsorði.

Að kröfu ákæruvalds og með vísan til dómsniðurstöðu verður ákærða dæmd til greiðslu sakarkostnaðar, þ.e. þóknun skipaðs verjanda síns, eins og hún ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum.

Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærða, Sigríður Sif Gunnarsdóttir, sæti fangelsi í 45 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum, haldi hún almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærða greiði sakarkostnað, þ.e. þóknun skipaðs verjanda hennar, Júlíar Óskar Antonsdóttur lögmanns, 91.760 krónur.

Heimildaskrá