Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 21. október 2016.
Mál nr. S-145/2014:
D Ó M U R
nr. S-145/2014:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Mál
þetta, sem dómtekið var 4. október 2016, er höfðað með tveimur ákærum
lögreglustjórans á Akureyri á hendur X.
Fyrri
ákæra er gefin út 3. september 2014 og er,
„fyrir
umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudagskvöldið 20. maí 2014 ekið
þaðan yfir á bifreiðastæði við Skarðshlíð 14, þar sem hann stöðvaði aksturinn
og hafa skömmu síðar eftir að hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina
á Akureyri neitað að veita lögreglu atbeina sinn við rannsókn málsins, með því
að gefa þvagsýni og að aka greinda leið án þess að vera með ökuskírteini sitt
meðferðis við aksturinn.
Telst
þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, 2. sbr. 3. mgr. 47. gr. og 1.
mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, með síðari
breytingum.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls
sakarkostnaðar og sæti sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. nefndra
umferðarlaga, með síðari breytingum, en ákærði var sviptur ökurétti til bráðabirgða
þann 20. maí 2014.“
Síðari
ákæra var gefin út 14. ágúst 2015 og er
„fyrir
fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 20. mars 2015, við Naustabryggju
(Sigmundur Guðmundsson hdl)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Sakfellt fyrir vörslu fíkniefna og fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.
„fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudagskvöldið 20. maí 2014 ekið bifreiðinni [...], undir áhrifum fíkniefna (í blóði hans mældist tetrahýdrókannabínól 8,1 ng/ml) um Áshlíð á Akureyri og austur Höfðahlíð og þaðan yfir á bifreiðastæði við Skarðshlíð 14, þar sem hann stöðvaði aksturinn og hafa skömmu síðar eftir að hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina á Akureyri neitað að veita lögreglu atbeina sinn við rannsókn málsins, með því að gefa þvagsýni og að aka greinda leið án þess að vera með ökuskírteini sitt meðferðis við aksturinn.
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, 2. sbr. 3. mgr. 47. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og sæti sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, með síðari breytingum, en ákærði var sviptur ökurétti til bráðabirgða þann 20. maí 2014.“ Síðari ákæra var gefin út 14. ágúst 2015 og er „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 20. mars 2015, við Naustabryggju 16 í Reykjavík haft í vörslum sínum 28,83 grömm af amfetamíni en lögreglan fann efnin við leit á honum á vettvangi.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á efni því, sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrá nr. 29.912, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Málin voru sameinuð. Fyrir dómi játaði ákærði skýlaust sök samkvæmt báðum ákærum, en hafði áður neitað sök samkvæmt fyrri ákæru. Með játningu sinni sem fær stoð í gögnum málsins og ekki þykir ástæða til að draga í efa er ákærði sannur að sök og hefur unnið sér til refsingar en háttsemi hans er rétt færð til refsiheimilda í ákærum. Í febrúar 2009 var ákærði dæmdur til greiðslu 95.000 króna sektar fyrir fíkniefnalagabrot og brot gegn 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga og jafnframt sviptur ökurétti í þrjá mánuði. Í september 2009 voru honum ákveðin viðurlög, 70.000 króna sekt, fyrir fíkniefnalagabrot. Hinn 24. júní 2013 var ákærði dæmdur í eins mánaðar fangelsi fyrir þjófnað og fíkniefnalagabrot og var honum jafnframt gert að greiða 105.000 króna sekt í ríkissjóð. Fullnustu fangelsisrefsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Með þeim brotum sem ákærði er nú sakfelldur fyrir rauf hann það skilorð sem honum var sett með dóminum 24. júní 2013. Verður skilorðshluti dómsins nú tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi. Ákveðst refsing hans nú fangelsi í tvo mánuði en rétt þykir að fullnustu hennar verði frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð. Jafnframt verður ákærða gert að greiða 340.000 króna sekt í ríkissjóð og komi 24 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins. Þá verður ákærði nú sviptur ökurétti í þrjú ár, frá 20. maí 2014 að telja, en ákærði var þá sviptur ökurétti til bráðabirgða. Ákærða verður gert að greiða 83.886 króna málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sigmundar Guðmundssonar hdl., og er virðisaukaskattur innifalinn og 100.915 króna annan sakarkostnað. Fallast ber á gerða upptökukröfu. Eyþór Þorbergsson fulltrúi fór með mál þetta af hálfu ákæruvaldsins. Þorsteinn Davíðsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð
Ákærði, X, sæti fangelsi í tvo mánuði. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og niður skal hún falla að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði 340.000 króna sekt í ríkissjóð en 24 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins. Ákærði er sviptur ökurétti í þrjú ár frá 20. maí 2014 að telja. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sigmundar Guðmundssonar hdl., 83.886 krónur og 100.915 króna annan sakarkostnað.
Upptæk eru gerð 28,83 grömm af amfetamíni sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.