Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-85/2008:

D Ó M U R

máli

nr. S-85/2008:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Sakfellt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Dæmd sekt og efni og munir gerð upptæk.

Málið fékk upphaflega nr. S-431/2007 í málaskrá, var sameinað máli nr. S- 430/2007, en í dag var þáttur ákærða klofinn frá því og verður dæmdur sér í lagi í þessu máli.

Ákærða er gefið að sök að hafa, þriðjudaginn 14. ágúst 2007, saman með A og B, haft í vörslum sínum að Stallatúni ... á Akureyri 0,09 grömm af amfetamíni sem lögreglan fann við leit í húsinu.

Þetta er talið varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65,1974, sbr. lög nr. 60,1980, sbr. lög nr. 13,1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta í sameiningu með A og B upptöku á 0,09 grömmum af amfetamíni skráðu í efnaskrá lögreglu nr. 12262, 1 stk. topp útbúnum til hassreykinga, 1 upprúlluðum 1.000 króna seðli með efnisleifum auk bréfs og plasts með efnisleifum skv. 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65,1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.

Ákærði sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall.  Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 120. gr. laga nr. 19/1991.

Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 126. gr. sömu laga að leggja dóm á málið að ákærða fjarverandi, enda varðar meint brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a. lið.  Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga.

Sakaferill ákærða hefur ekki áhrif á refsingu hans fyrir framangreint brot. Ákveðst hún 37.500 krónur í sekt til ríkissjóðs.  Skal sektin greiðast innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en ákærði sæta fangelsi í fjóra daga ella.

Gera ber efni og muni upptæk eins og krafist er í ákæru og nánar er rakið í dómsorði.

Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X, greiði 37.500 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en sæti ella fangelsi í fjóra daga.

Gerð eru upptæk 0,09 grömm af amfetamíni skráð í efnaskrá lögreglu nr. 12262, 1 stk. toppur útbúinn til hassreykinga, 1 upprúllaður 1.000 króna seðill með efnisleifum og bréf og plast með efnisleifum.

Heimildaskrá