Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-53/2008:

D Ó M U R

máli

nr. S-53/2008:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur á amfetamíni. Dæmd sekt og amfetamínið gert upptækt.

„fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudagskvöldið 12. október 2007, verið með í vörslum sínum 2,04 grömm af amfetamíni, þegar lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af honum í bifreiðinni TH-719 á bensínstöð Skeljungs, við Suðurfell í Reykjavík.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65,1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13,1985 og sbr. lög nr. 82,1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233,2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 2,04 grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 12.610, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65,1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233,2001.“

Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök.  Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga.

Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu með heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði X átta sinnum hlotið refsingar fyrir brot á hegningarlögum, umferðarlögum, lögum um náttúruvernd og lögum um ávana- og fíkniefni.  Þann 25. febrúar 2005 var hann dæmdur í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir þjófnað.  Þann 24. október 2005 var hann dæmdur í 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, og var þá dómurinn frá 25. febrúar 2005 tekinn upp og dæmdur með.  Í nóvember 2005 gekkst ákærði undir sátt um greiðslu sektar fyrir umferðarlagabrot og þan 19. janúar 2006 var hann dæmdur til greiðslu kr. 185.000í sekt fyrir fíkniefnalagabrot.  Þann 10. maí 2006 var hann dæmdur í 5 mánaða fangelsi, þar af 3 mánuði skilorðsbundna í 3 ár, fyrir þjófnað og húsbrot og var þá dómurinn frá 24. október 2005 tekinn upp og dæmdur með.  Þá var hann með dómi héraðsdóms þann 11. desember 2006 dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot á lögum um náttúruvernd og loks var hann með dómi héraðsdóms þann 6. febrúar 2007 dæmdur til greiðslu kr. 130.000 í sekt fyrir umferðarlagabrot auk þess að vera sviptur ökurétti í 12 mánuði.  Með broti því sem ákærði er nú dæmdur fyrir hefur hann rofið skilorðshluta dómsins frá 10. maí 2006.  Með því að brot það, sem ákærði er hér sakfelldur fyrir, varðar aðeins sektum þykir rétt að láta skilorðsdóminn halda sér en dæma refsingu fyrir brot það sem hér um ræðir sér í lagi án skilorðs, sbr. heimild í 60. gr. almennra hegningarlaga.

Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 60.000 krónur í sekt, sem greiða ber í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja, ella sæti ákærði fangelsi í 4 daga.  Þá er fallist á kröfu ákæruvaldsins um upptöku á 2,04 grömmum af amfetamíni.

Dóm þennan kveður upp Ólafur Ólafsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X greiði 60.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en sæti ella fangelsi í 4 daga.

Upptæk eru gerð 2,04 grömm  af amfetamíni með nr. 12.610 í efnaskrá lögreglu.

Heimildaskrá