Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 4. mars 2008.
Mál nr. S-47/2008:
D Ó M U R
máli
nr. S-47/2008:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
Birni Ævari Hansen
Mál
þetta, sem var dómtekið í dag, höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri þann 17.
desember sl. gegn Birni Ævari Hansen, kt. 000000-0000, Dvergagili 2, Akureyri.
Ákærða
er gefið að sök að hafa miðvikudaginn 15. ágúst 2007 haft sameiginlega með A og
B í vörslum sínum 4,33 grömm af amfetamíni, 1 stk. rafstuðbyssu, 2 stk.
loftskammbyssur, 1 stk. hafnaboltakylfu, 1 stykki trékylfu og 1 stk. hníf sem
lögreglan fann við leit í bifreiðinni LY-803 við Borgarbraut 1 á Akureyri.
Er
þetta talið varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og
fíkniefni, nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr.
lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana-
og fíkniefna nr. 233, 2001, 1. mgr. 12. gr. og b- og e-liði 2. mgr. 30. gr.
sbr. l. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta í sameiningu með
A og B upptöku á 4,33 grömmum af amfetamíni, skráð í efnaskrá lögreglu nr.
12249, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar
nr. 233, 2001, 1 stk. rafstuðbyssu, 2 stk. loftskammbyssum, 1 stk.
hafnaboltakylfu, 1 stykki trékylfu og 1 stk. hníf, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga
nr. 16,1998 og 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Málið
fékk nr. S-430/2007 í málaskrá dómsins, en þáttur ákærða var skilinn frá því í
dag og sameinaður þessu máli, sem sami sýslumaður höfðaði gegn ákærða þann 8.
febrúar 2008;
„fyrir
umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 26. desember 2007,
ekið bifreiðinni UN-537, undir áhrifum fíkniefna (Amfetamíns 88 ng/ml) vestur
Strandgötu á Akureyri, þar sem lögreglan stöðvaði akstur hans, við hús nr. 6.
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, sbr. 1. mgr. 100. gr.
umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006.
Þess
Útdráttur
Sakfellt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, vopnalögum og umferðarlögum. Dæmd sekt og svipting ökuréttar og efni og munir gerð upptæk.
Mál þetta, sem var dómtekið í dag, höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri þann 17. desember sl. gegn Birni Ævari Hansen, kt. 000000-0000, Dvergagili 2, Akureyri.
Ákærða er gefið að sök að hafa miðvikudaginn 15. ágúst 2007 haft sameiginlega með A og B í vörslum sínum 4,33 grömm af amfetamíni, 1 stk. rafstuðbyssu, 2 stk. loftskammbyssur, 1 stk. hafnaboltakylfu, 1 stykki trékylfu og 1 stk. hníf sem lögreglan fann við leit í bifreiðinni LY-803 við Borgarbraut 1 á Akureyri.
Er þetta talið varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001, 1. mgr. 12. gr. og b- og e-liði 2. mgr. 30. gr. sbr. l. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta í sameiningu með A og B upptöku á 4,33 grömmum af amfetamíni, skráð í efnaskrá lögreglu nr. 12249, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001, 1 stk. rafstuðbyssu, 2 stk. loftskammbyssum, 1 stk. hafnaboltakylfu, 1 stykki trékylfu og 1 stk. hníf, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga nr. 16,1998 og 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Málið fékk nr. S-430/2007 í málaskrá dómsins, en þáttur ákærða var skilinn frá því í dag og sameinaður þessu máli, sem sami sýslumaður höfðaði gegn ákærða þann 8. febrúar 2008; „fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 26. desember 2007, ekið bifreiðinni UN-537, undir áhrifum fíkniefna (Amfetamíns 88 ng/ml) vestur Strandgötu á Akureyri, þar sem lögreglan stöðvaði akstur hans, við hús nr. 6. Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 1. mgr., sbr. 4. mgr. 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66, 2006.“
Ákærði sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 120. gr. laga nr. 19/1991.
Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 126. gr. sömu laga að leggja dóm á málið að ákærða fjarverandi, enda varðar meint brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a. lið. Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í framangreindum ákærum og þar er rétt heimfærð til laga.
Ákærði var þann 15. febrúar 2006 sakfelldur fyrir líkamsárás, en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þann 16. október 2007 var hann dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir þjófnað. Ber að tiltaka refsingu ákærða nú sem hegningarauka við þann dóm, hvað varðar brot hans sem greind eru í ákæru 17. desember sl. Brot hans samkvæmt ákæru 8. febrúar sl. er rof á skilorði dómsins. Rétt þykir að láta skilorðsdóminn haldast en dæma ákærða refsingu nú sér í lagi, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með síðari breytingum. Ber að ákveða refsinguna samkvæmt reglum 77. gr. og 78. gr. sömu laga.
Refsing ákærða ákveðst 150.000 krónur í sekt til ríkissjóðs. Skal sektin greiðast innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en ákærði sæta fangelsi í 10 daga ella.
Samkvæmt 4. mgr. 102. gr. umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006, ber að svipta ákærða ökurétti í þrjá mánuði frá birtingu þessa dóms að telja.
Gera ber efni og muni upptæk eins og krafist er í ákæru og nánar er rakið í dómsorði.
Dæma ber ákærða til að greiða allan kostnað sakarinnar, sem samkvæmt yfirliti nemur 110.453 krónum.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, Björn Ævar Hansen greiði 150.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en sæti ella fangelsi í 10 daga.
Ákærði er sviptur ökurétti í þrjá mánuði frá birtingu dómsins að telja.
Ákærði greiði 110.453 krónur í sakarkostnað.
Gerð eru upptæk eru 4,33 grömm af amfetamíni, skráð í efnaskrá lögreglu nr. 12249, rafstuðbyssa, tvær loftskammbyssur, hafnaboltakylfa, trékylfa og hnífur.
Erlingur Sigtryggsson.