Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-41/2008:

D Ó M U R

máli

nr. S-41/2008:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Dæmt fangelsi í einn mánuð fyrir þjófnað.

I.

Með því að hafa mánudagskvöldið 23. október 2007, brotist inn í sambýli geðfatlaðra að Vallartúni (...) á Akureyri og stolið þaðan ýmiskonar lyfjum að verðmæti samtals kr. 25.868-.

II.

Með því að hafa laugardaginn 26. janúar 2008, stolið gallabuxum að verðmæti kr. 9.999úr versluninni Centro, Hafnarstræti 97 á Akureyri.

Brot þessi teljast varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.  Í málinu gerir Akureyrarbær, kt. 000000-0000, Geislagötu 9, Akureyri, bótakröfu á hendur ákærða að fjárhæð kr. 25.868-, auk vaxta samkvæmt vaxtalögum nr. 38, 2001, frá 23.10.2007 til uppkvaðningar dóms, en dráttarvaxta frá þeim degi til greiðsludags.“

Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök.  Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga.

Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu með heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.

Sá hluti sakaferils ákærða sem skiptir máli um ákvörðun refsingar hans er á þann veg að þann 15. desember 2006 var hann dæmdur til að greiða sekt fyrir þjófnað og umferðarlagabrot.  Þann 23. febrúar 2007 var hann á ný dæmdur til að greiða sekt fyrir þjófnað og var þar um hegningarauka að ræða.  Þann 22. maí sama ár var hann dæmdur í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir þjófnað.  Þann 13. desember sl. var hann dæmdur í fangelsi í tvo mánuði fyrir þjófnað, eignaspjöll og brot gegn vopnalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.  Var skilorðsdómurinn frá 22. maí 2007 þá dæmdur með.

Refsingu ákærða ber að tiltaka sem hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga við síðast greindan dóm, hvað varðar það brot sem lýst er í ákærulið I, en að öðru leyti samkvæmt reglum 77. gr. almennra hegningarlaga.  Verður ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í einn mánuð og með hliðsjón af sakaferli hans eru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Ákærði samþykkti fram komna bótakröfu Akureyrarbæjar.  Krafist er „almennra vaxta“ samkvæmt vaxtalögum nr. 38/2001.  Er sú kröfugerð ekki nægilega skýr og verður þeim þætti kröfunnar vísað frá dómi.  Ákærði verður dæmdur til að greiða kröfuna með dráttarvöxtum eins og greinir í dómsorði.

Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X, sæti fangelsi í einn mánuð.

Ákærði greiði Akureyrarbæ 25.868 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38, 2001, frá uppsögu þessa dóms að telja til greiðsludags.