Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 3. mars 2008.
Mál nr. S-35/2008:
D Ó M U R
máli
nr. S-35/2008:
Ákæruvaldið
(Svavar Pálsson fulltrúi)
gegn
X
Útdráttur
Dæmt 90 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórnininni.
„fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 15. desember 2007, utandyra við veitingastaðinn Kaffi Akureyri, Strandgötu 7, Akureyri, skallað [A], lögreglumann, sem þar hafði afskipti af ákærða vegna skyldustarfa sinna, í andlitið, með þeim afleiðingum að [A] hlaut bólgur og yfirborðsáverka á andlit og heilahristing.
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 25/2007.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga.
Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu með heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.
Sakaferill ákærða hefur ekki áhrif á refsingu hans fyrir framangreint brot.
Ákærði lýsti því hér fyrir dómi að hann iðraðist brotsins og hefði unnið að því að bæta ráð sitt. Verður tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar, en að hinu leytinu til afleiðinga höggsins, sbr. lýsingu í ákæru. Ákveðst refsing ákærða fangelsi í 90 daga, en rétt er að skilorðsbinda hana eins og nánar er lýst í dómsorði.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í 90 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.