Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 11. júní 2007.
Mál nr. S-84/2007:
D Ó M U R
nr. S-84/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
(Árni Pálsson hrl)
Útdráttur
Kona dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað.
Mál þetta, sem dómtekið var 7. maí sl., hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru, útgefinni 23. mars 2007 á hendur X;
,,fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 19. febrúar 2007, stolið fjórum gullhringum og Fossil armbandsúri úr klefa í sólbaðsstofunni Stjörnusól við Geislagötu á Akureyri en heildarverðmæti munanna var um 80.000 kr.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar.“
Ákærða hefur hér fyrir dóminum skýlaust játað brot sitt eins og því er lýst í ákæru og er sök hennar því nægjanlega sönnuð og varðar brot hennar við lagaákvæði þau er í ákæru greinir.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærða samtals þrisvar áður gerst brotleg gegn lögum. Þann 30. júní 1998 gekkst ákærða við sátt fyrir brot gegn umferðarlögum og var hún svipt ökurétti í 3 ár. Þann 17. október 2003 var ákærða dæmd til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um ávana og fíkniefni. Þann 19. maí 2006 var ákærða dæmd í 60 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga. Með broti sínu nú rauf ákærða skilorð síðast talda dómsins og ber því að dæma það brot með nú eftir reglum a 77. gr. almennra hegningarlaga. Þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 4 mánuði. Enn þykir, með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga, mega fresta fullnustu refsingar þannig að hún falli niður að 3 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Ekki er annar sakarkostnaður er í málinu en þóknun skipaðs verjanda ákærðu, Árna Pálssonar hrl., sem þykja hæfilega ákveðin kr. 70.000- og er virðisaukaskattur þar innifalinn.
Uppkvaðning dóms þessa hefur dregist lítillega vegna anna dómarans.
Dóm þennan kveður upp Freyr Ófeigsson, dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærða, X, sæti fangelsi í 4 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og hún falla niður að 3 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Ákærða greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Árna Pálssonar hrl., kr. 70.000- og er virðisaukaskattur þar innifalinn.