Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-72/2007:

D Ó M U R

nr. S-72/2007:

Ákæruvaldið

(Guðjón Jóel Björnsson fulltrúi)

gegn

X

Mál

þetta, sem dómtekið var 26. apríl s.l., hefur lögreglustjórinn á Akureyri

höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru, útgefinni 19. mars

2007, á hendur X;

,,fyrir

líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 23. júlí 2006, á

hátíðarsvæði á útihátíð í Hrísey, slegið [A], hnefahögg í andlitið, með þeim

afleiðingum að hann hlaut 1 cm langan skurð á húð vinstra megin á kinn, nokkuð

djúpan, einnig um 2 cm langan tættan skurð í slímhúð vinstra megin ásamt því að

sýking kom í sárið.

Telst

þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 10.

gr. laga nr. 20, 1981.

Þess

er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Í

málinu gerir Þorsteinn Hjaltason, hdl. fyrir hönd [A], skaðabótakröfu á hendur

ákærða, að fjárhæð kr. 328.620- ásamt dráttarvöxtum frá 4. september 2006 til

greiðsludags.“

Ákærði

krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og málsvarnarlauna til handa skipaðs

verjanda sínum.  Hann krefst þess

aðallega að bótakröfunni verði vísað frá dómi en til vara að bætur fyrir miska

verði lækkaðar verulega.

Hér

fyrir dóminum hefur ákærði viðurkennt brot sitt eins og því er lýst í

ákærunni.  Er játning ákærða í samræmi

við gögn málsins.  Telst brot hans því

nægjanlega sannað og varðar það við tilgreint lagaákvæði í ákæru.

Samkvæmt

(Sigmundur Guðmundsson hdl)

Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og til greiðslu skaðabóta.

Mál þetta, sem dómtekið var 26. apríl s.l., hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru, útgefinni 19. mars 2007, á hendur X;

,,fyrir líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 23. júlí 2006, á hátíðarsvæði á útihátíð í Hrísey, slegið [A], hnefahögg í andlitið, með þeim afleiðingum að hann hlaut 1 cm langan skurð á húð vinstra megin á kinn, nokkuð djúpan, einnig um 2 cm langan tættan skurð í slímhúð vinstra megin ásamt því að sýking kom í sárið.

Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20, 1981.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Í málinu gerir Þorsteinn Hjaltason, hdl. fyrir hönd [A], skaðabótakröfu á hendur ákærða, að fjárhæð kr. 328.620ásamt dráttarvöxtum frá 4. september 2006 til greiðsludags.“

Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og málsvarnarlauna til handa skipaðs verjanda sínum.  Hann krefst þess aðallega að bótakröfunni verði vísað frá dómi en til vara að bætur fyrir miska verði lækkaðar verulega.

Hér fyrir dóminum hefur ákærði viðurkennt brot sitt eins og því er lýst í ákærunni. Er játning ákærða í samræmi við gögn málsins.  Telst brot hans því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreint lagaákvæði í ákæru.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins var ákærði þann 7. júní 2006 dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í 2 ár fyrir brot gegn 1. mgr. 218. og 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga.  Með broti sínu nú rauf ákærði skilorð framangreinds dóms.  Verður sá dómur dæmdur með nú og refsing ákveðin í einu lagi sbr. 60. gr. og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga.  Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði.  Með hliðsjón af ungum aldri ákærða og með heimild í 60. gr. almennra hegningarlaga þykir enn fært að fresta fullnustu refsingar þannig að hún falli niður að þremur árum liðnum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði allmennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Bótakrafa A er þannig sundurliðuð:

  1. Miskabætur                                    kr. 300.000-
  2. Lækniskostnaður                                     3.620-
  3. Lögmannskostnaður                              25.000- Ákærði hefur hér fyrir dóminum samþykkt að greiða útlagðan kostnað bótakrefjanda, þ.e. lið 2 og 3 en krafist lækkunar á lið nr. 1.  Ber að dæma ákærða til greiðslu þeirra fjárhæða.  Brotaþoli á rétt á miskabótum úr hendi ákærða sem þykja hæfilega ákveðnar 120.000-.  Verður ákærði samkvæmt framanskráðu dæmdur til að greiða A samtals kr. 148.620ásamt vöxtum eins og krafist er.

    Samkvæmt yfirliti ákæruvaldsins nemur kostnaður af málinu kr. 15.000-, sem er greiðsla fyrir læknisvottorð.  Ber að dæma ákærða til að greiða þá fjárhæð í sakarkostnað auk málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Sigmundar Guðmundssonar hdl., sem ákveðast kr. 160.000- og er virðisaukaskattur þar innifalinn.

    Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson, dómstjóri.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði X, sæti fangelsi í 3 mánuði en fresta skal fullnustu refsingar og hún niður falla að þremur árum liðnum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.

Ákærði greiði A kr. 148.620í skaðabætur ásamt dráttarvöxtum frá 4. september 2006 til greiðsludags.

Ákærði greiði kr. 175.000í sakarkostnað þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sigmundar Guðmundssonar hdl., kr. 160.000- og er virðisaukaskattur þar innifalinn.