Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 13. apríl 2007.
Mál nr. S-68/2007:
D Ó M U R
nr. S-68/2007:
Ákæruvaldið
(Einar Ingimundarson fulltrúi)
gegn
X
Mál
þetta, sem dómtekið var í dag, hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað hér
fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru, útgefinni 13. febrúar 2007;
á
hendur X, fyrir tilraun til þjófnaðar.
Er ákærðu gefið að sök að hafa, aðfaranótt laugardagsins 6. febrúar 2007
ásamt pilti, brotist inn í húsnæði
Verkmenntaskólans á Akureyri, með því að brjóta upp glugga í kennslustofu C02,
í þeim tilgangi að stela þaðan myndvarpa sem þau hugðust selja, en flúið af
vettvangi er viðvörunarkerfi fór í gang.
Er
háttsemi ákæru talin varða við 244. gr. sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19, 1940 og þess krafist að hún verði dæmd til refsingar.
Í
málinu gerir [A] f.h. Verkmenntaskólans á Akureyri, kt. 000000-0000, Skálateigi
2, Akureyri, kröfu um greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 48.000-.
Ákærða
hefur hér fyrir dóminum skýlaust játað brot sitt eins og því er lýst í ákæru og
er sök hennar því nægjanlega sönnuð og varðar brot hennar við lagaákvæði þau er
í ákæru greinir.
Samkvæmt
vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærða alloft sætt refsingum á árunum 2003
Útdráttur
Kona dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til þjófnaðar og til að greiða skaðabætur
X
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru, útgefinni 13. febrúar 2007; á hendur X, fyrir tilraun til þjófnaðar. Er ákærðu gefið að sök að hafa, aðfaranótt laugardagsins 6. febrúar 2007 ásamt pilti, brotist inn í húsnæði Verkmenntaskólans á Akureyri, með því að brjóta upp glugga í kennslustofu C02, í þeim tilgangi að stela þaðan myndvarpa sem þau hugðust selja, en flúið af vettvangi er viðvörunarkerfi fór í gang.
Er háttsemi ákæru talin varða við 244. gr. sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 og þess krafist að hún verði dæmd til refsingar.
Í málinu gerir [A] f.h. Verkmenntaskólans á Akureyri, kt. 000000-0000, Skálateigi 2, Akureyri, kröfu um greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 48.000-.
Ákærða hefur hér fyrir dóminum skýlaust játað brot sitt eins og því er lýst í ákæru og er sök hennar því nægjanlega sönnuð og varðar brot hennar við lagaákvæði þau er í ákæru greinir.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærða alloft sætt refsingum á árunum 2003 til 2007 fyrir brot á hegningarlögum og fíkniefnalöggjöfinni. Síðast var ákærða dæmd í Héraðsdómi Reykjaness í 110.000 króna sekt fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni þann 10. janúar 2007. Brot það er hér er til umfjöllunar framdi ákærða áður en sá dómur gekk og verður höfð hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar. Hinn 14. október 2005 var ákærða dæmd í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot á 244. gr. almennra hegningarlaga í Héraðsdómi Austurlands. Með broti sínu nú rauf ákærða skilorð þess dóms, en rétt þykir með heimild í 60. gr. almennra hegningarlaga að láta þann dóm haldast og dæma sérstaklega refsingu nú. Þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 2 mánuði, en rétt er að fullnustu refsingar verði frestað og hún falli niður að 3 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Ákærða hefur hér fyrir dóminum samþykkt fram komna bótakröfu og verður hún dæmd til greiðslu hennar svo sem í dómsorði greinir.
Enginn sakarkostnaður er í málinu.
Dóm þennan kveður upp Freyr Ófeigsson, dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærða, X, sæti fangelsi í 2 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og hún falla niður að 3 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Ákærði greiði Verkmenntaskólanum á Akureyri kr. 48.000.