Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 2. apríl 2007.
Mál nr. S-67/2007:
D Ó M U R
máli
nr. S-67/2007:
Ákæruvaldið
(Guðjón Jóel Björnsson fulltrúi)
gegn
X
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás.
X.
Mál þetta, sem dómtekið var 19. mars s.l., hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru, útgefinni 5. mars 2007, á hendur X; „fyrir líkamsárás, með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 25. júní 2006, á veitingahúsinu Bakaríinu, Hafnarbraut 5, Dalvík, hent bjórglasi úr gleri í andlit [A], með þeim afleiðingum að hann hlaut sár í andliti þannig að hann var með yfirborðsáverka á enni og vinstri helming andlits.
Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20, 1981.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
Við þingfestingu málsins hinn 19. mars s.l. sótti ákærði þing og viðurkenndi hér í dóminum brot sitt eins og því er lýst í ákæru og er sú játning hans í samræmi við gögn málsins og telst brot hans því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreind lagaákvæði í ákæru.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði eigi sætt refsingum er máli skipta við ákvörðun refsingar í þessu máli. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 1 mánuð, en rétt þykir að fullnustu refsingar verði frestað og hún falli niður að 2 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Í málinu liggur fyrir yfirlit yfir sakarkostnað vegna læknisvottorða, samtals kr. 15.000 og ber að dæma ákærða til greiðslu þeirrar fjárhæðar í sakarkostnað.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í 1 mánuð, en fresta skal fullnustu refsingar og hún falla niður að 2 árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Ákærði greiði kr. 15.000 í sakarkostnað.