Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 11. apríl 2007.
Mál nr. S-56/2007:
D Ó M U R
nr. S-56/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir vörslur fíkniefna, akstur undir áhrifum fíkniefna og ölvunaraksturs. Hann var jafnframt dæmdur til ökuréttarsviptingar og tila að sæta upptöku efnanna.
X
Mál þetta, sem dómtekið var þann 14. mars sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með þremur ákærum lögreglustjórans á Akureyri, útgefnum þann 16. febrúar sl., á hendur X.
Með þeirri fyrstu, sem er upphaflega mál nr. S-56/2007, er ákærða gefið að sök umferðarlagabrot „með því að hafa föstudaginn 1. desember 2006, ekið bifreiðinni MI-195, undir áhrifum áfengis (1,34‰) og undir áhrifum fíkniefna (amfetamín160 ng/ml) frá Hótel KEA, við Kaupvangsstræti á Akureyri, um Kaupvangsstræti, Glerárgötu og Þórunnarstræti, uns lögreglan stöðvaði bifreiðina við lögreglustöðina á Akureyri.
Telst þetta varða við 1. mgr. sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. A, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. lög nr. 48, 1997 og lög nr. 66, 2006.“
Með ákæru í máli sem var nr. S-57/2007 er ákærða gefið að sök fíkniefnalagabrot „með því að hafa föstudaginn 1. desember 2006, verið með í vörslum sínum 1,04 grömm af amfetamíni í herbergi 423 á Hótel KEA, Hafnarstræti 89, Akureyri, þar sem hann dvaldi sem gestur.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga nr. ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.“
Með ákæru í máli sem var nr. 58/2007 er ákærða gefið að sök umferðarlagabrot „með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 21. janúar 2007, ekið bifreiðinni MI-195, undir áhrifum áfengis (1,97‰) frá Brimneshóteli á Ólafsfirði og suður Ægisgötu, þar sem lögreglan stöðvaði akstur hans.
Telst þetta varða við 1. mgr. sbr. 3. mgr. 45. gr., 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. lög nr. 48, 1997.“
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga og til að sæta upptöku á 1,04 grömmum af amfetamíni samkv. efnaskrá lögreglu nr. 10.578.
Fyrirköll vegna málanna voru gefin út 22. febrúar sl. og birt ákærða 11. mars sl. Við þingfestingu málanna þann 14. mars sl. sótti ákærði ekki þing og voru málin þá sameinuð og dómtekin að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Þykir mega jafna útivist hans til játningar hans, sbr. téða lagagrein, enda fer sú niðurstaða eigi í bága við gögn málsins. Telst sök ákærða því nægjanlega sönnuð og varðar við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins var ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir fíkniefnalagabrot þann 18. september 2006 en hann hefur ekki sætt öðrum refsingum. Ákveða ber ákærða refsingu eftir reglum 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þykir refsing ákærða hæfilega áveðin kr. 250.000,- í sekt í ríkissjóð og komi 18 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna frá birtingu dóms þessa.
Með vísan til 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga ber að svipta ákærða ökurétti í tvö og hálft ár frá birtingu dómsins.
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilvitnaðra ákvæða eru upptæk gerð fíkniefni svo sem í dómsorði greinir.
Dæma ber ákærða til greiðslu kr. 109.434,- í sakarkostnað vegna töku blóð- og þvagsýna og rannsóknar þeirra.
Dómsuppsaga hefur tafist lítillega vegna starfsanna dómarans.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði X greiði kr. 250.000í sekt til ríkissjóðs og komi 18 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna frá birtingu dóms þessa.
Ákærði er sviptur ökurétti í tvö og hálft ár frá birtingu dómsins.
Ákærði sæti upptöku á 1,04 grömmum af amfetamíni samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 10.578.