Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 11. apríl 2007.
Mál nr. S-45/2007:
D Ó M U R
nr. S-45/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir vörslur fíkniefna og til að sæta upptöku þeirra
X
Mál þetta, sem dómtekið var þann 14. mars sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 16. febrúar sl., á hendur X, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 4. nóvember 2006, verið með í vörslum sínum 1,05 grömm af amfetamíni á heimili sínu að [...].
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 1,05 grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrám nr. 10.467 og 10.560, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
Fyrirkall í máli þessu var gefið út þann 22. febrúar sl. og birt ákærða 8. mars sl. Við þingfestingu málsins þann 14. mars sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans, sbr. téða lagagrein, enda fer sú niðurstaða eigi í bága við gögn málsins. Telst sök ákærða því nægjanlega sönnuð og varðar við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði fjórum sinnum hlotið sektir fyrir fíkniefnalagabrot. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin kr. 45.000,- í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilvitnaðra ákvæða ber að gera upptæk fíkniefni eins og nánar greinir í dómsorði.
Enginn sakarkostnaður hlaust af rannsókn og rekstri málsins.
Dómsuppsaga hefur tafist lítillega vegna starfsanna dómarans.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði X greiði kr. 45.000,- í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Ákærði sæti upptöku á 1,05 grömmum af amfetamíni samkvæmt efnaskrám lögreglu nr. 10.467 og 10.560.