Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 10. janúar 2008.
Mál nr. S-398/2007:
D Ó M U R
nr. S-398/2007:
Ákæruvaldið
(Guðjón Jóel Björnsson fulltrúi)
gegn
X.
Mál
þetta, sem var dómtekið 21. desember sl., höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri hér
fyrir dómi þann 19. nóvember 2007 gegn X;
„fyrir
líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 10. desember 2006, á
heimili ákærða, Skessugili [...], Akureyri, ráðist á [A], með því að hrinda
henni í gólfið og slá hana hnefahöggum í höfuðið og grípa í hár hennar og reka
hné sitt ítrekað í andlit hennar við nef, með þeim afleiðingum að hún bólgnaði
á enni og hlaut ca 1,5 cm skurð lóðréttan á milli augnanna og einnig skurð
hægra megin á höfði, ca 1,5 cm langan, auk kúlu vinstra megin á höfðinu,
stífleika í herðum og hálsi, auk þess sem síðar komu fram einkenni áfalls í
formi streituröskunar.
Telst
þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 10.
gr. laga nr. 20, 1981.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í
málinu gerir Þ. Skorri Steingrímsson hdl. fyrir hönd [A], bótakröfu á hendur
ákærða að fjárhæð kr. 1.730.394,- samkvæmt sakareglum skaðabótaréttar og
skaðabótalögum nr. 50/1993, miskabóta skv. 26. gr., þjáningabóta skv. 3. gr.,
tímabundið atvinnutjón skv. 2. gr., bætur fyrir annað fjártjón samkvæmt
framlögðum kvittunum, auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 6. október
2007 og fram til þess tíma er mánuður er liðinn frá því krafan var kynnt
sakborningi en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags.“
Ákærði
hefur komið hér fyrir dóm og játað sök. Með
skýlausri játningu hans sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum
samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þann verknað sem honum er
gefinn að sök í ákæru og varðar við þar tilgreint ákvæði almennra
hegningarlaga. Verður lagður dómur á
málið án frekari sönnunarfærslu samkvæmt 125. gr. laga nr. 19, 1991.
Ákærði
hefur ekki sætt refsingum. Við ákvörðun
refsingar verður að líta til þess að árás hans gegn A var gróf og alvarleg og
framin án nokkurs tilefnis. Ákveðst
refsing ákærða fangelsi í fjóra mánuði. Með tilliti til sakaferils ákærða þykir
rétt að skilorðsbinda refsingu hans eins og greinir í dómsorði.
Ákærði
500.000 króna fyrir tímabundið atvinnutjón, 94.500 króna í þjáningabætur,
45.009 króna fyrir annað fjártjón og 90.885 króna fyrir aðstoð lögmanns vegna
gerðar bótakröfu.
Tjónþoli
á rétt til miskabóta úr hendi ákærða og þykja þær hæfilega ákveðnar 200.000
krónur. Krafa um þjáningabætur og
tímabundið atvinnutjón er engum gögnum studd og verður þeim kröfuliðum vísað
frá dómi. Krafa um annað fjártjón er
studd gögnum vegna sjúkrakostnaðar að fjárhæð 34.934 krónur og verður tekin til
greina með þeirri fjárhæð. Bætur vegna
kostnaðar af aðstoð lögmanns við gerð bótakröfu þykja hæfilega ákveðnar 60.000
krónur. Samtals verður ákærði því dæmdur
til að greiða skaðabætur að fjárhæð 294.934 krónur með vöxtum eins og greinir í
dómsorði.
Ákærði
verður dæmdur til að greiða sakarkostnað, sem á rannsóknarstigi nemur 17.500
(Arnar Sigfússon hdl)
Útdráttur
Dæmdur skilorðsbundið fyrir líkamsárás
„fyrir líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 10. desember 2006, á heimili ákærða, Skessugili [...], Akureyri, ráðist á [A], með því að hrinda henni í gólfið og slá hana hnefahöggum í höfuðið og grípa í hár hennar og reka hné sitt ítrekað í andlit hennar við nef, með þeim afleiðingum að hún bólgnaði á enni og hlaut ca 1,5 cm skurð lóðréttan á milli augnanna og einnig skurð hægra megin á höfði, ca 1,5 cm langan, auk kúlu vinstra megin á höfðinu, stífleika í herðum og hálsi, auk þess sem síðar komu fram einkenni áfalls í formi streituröskunar.
Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20, 1981.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í málinu gerir Þ. Skorri Steingrímsson hdl. fyrir hönd [A], bótakröfu á hendur ákærða að fjárhæð kr. 1.730.394,- samkvæmt sakareglum skaðabótaréttar og skaðabótalögum nr. 50/1993, miskabóta skv. 26. gr., þjáningabóta skv. 3. gr., tímabundið atvinnutjón skv. 2. gr., bætur fyrir annað fjártjón samkvæmt framlögðum kvittunum, auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 6. október 2007 og fram til þess tíma er mánuður er liðinn frá því krafan var kynnt sakborningi en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags.“
Ákærði hefur komið hér fyrir dóm og játað sök. Með skýlausri játningu hans sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þann verknað sem honum er gefinn að sök í ákæru og varðar við þar tilgreint ákvæði almennra hegningarlaga. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu samkvæmt 125. gr. laga nr. 19, 1991.
Ákærði hefur ekki sætt refsingum. Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess að árás hans gegn A var gróf og alvarleg og framin án nokkurs tilefnis. Ákveðst refsing ákærða fangelsi í fjóra mánuði. Með tilliti til sakaferils ákærða þykir rétt að skilorðsbinda refsingu hans eins og greinir í dómsorði.
Ákærði mótmælir að langmestu leyti bótakröfu sem höfð er uppi í málinu. Krafist er 1.000.000 króna í miskabætur, 500.000 króna fyrir tímabundið atvinnutjón, 94.500 króna í þjáningabætur, 45.009 króna fyrir annað fjártjón og 90.885 króna fyrir aðstoð lögmanns vegna gerðar bótakröfu.
Tjónþoli á rétt til miskabóta úr hendi ákærða og þykja þær hæfilega ákveðnar 200.000 krónur. Krafa um þjáningabætur og tímabundið atvinnutjón er engum gögnum studd og verður þeim kröfuliðum vísað frá dómi. Krafa um annað fjártjón er studd gögnum vegna sjúkrakostnaðar að fjárhæð 34.934 krónur og verður tekin til greina með þeirri fjárhæð. Bætur vegna kostnaðar af aðstoð lögmanns við gerð bótakröfu þykja hæfilega ákveðnar 60.000 krónur. Samtals verður ákærði því dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð 294.934 krónur með vöxtum eins og greinir í dómsorði.
Ákærði verður dæmdur til að greiða sakarkostnað, sem á rannsóknarstigi nemur 17.500 krónum og þóknun skipaðs verjanda síns, Arnars Sigfússonar hdl., sem ákveðst í heild á rannsóknar- og dómstigi 80.000 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu refsingar hans og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi hann hið almenna skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955, að gerast ekki sekur um nýtt brot á skilorðstímanum.
Ákærði greiði A, 294.934 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38, 2001 frá 6. október 2007 til 15. nóvember 2007, en dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði 97.500 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns Arnars Sigfússonar hdl., 80.000 krónur.