Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 10. apríl 2007.
Mál nr. S-38/2007:
D Ó M U R
nr. S-38/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
(Ingvar Þóroddsson hdl)
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir vörslur fíkniefna og vopna og til að sæta upptöku efnanna og vopnanna
Mál þetta, sem dómtekið var 14. mars s.l., hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með þremur ákærum á hendur X.
Í ákæru útgefinni 16. febrúar 2007 er ákærða gefið að sök að hafa, aðfaranótt laugardagsins 16. september 2006, verið með í vörslum sínum 3,35 grömm af amfetamíni.
Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001.
Í annarri ákæru útgefinni sama dag er ákærði sakaður um fíkniefna- og vopnalagabrot:
A.
Með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 14. október 2006, verið með í vörslum sínum 5,61 grömm af amfetamíni og 2 e-töflur (ecstasy ) þegar lögreglan handtók hann á veitinga- og skemmtistaðnum Sjallanum, Geislagötu 14 á Akureyri.
B.
Með því að hafa átt og verið með á heimili sínu eftirtalin vopn sem fundust við leit á heimili hans aðfaranótt laugardagsins 14. október 2006: i. Loftbyssu af gerðinni Auto hardball. ii. Bjúglaga hníf með 21,5 cm löngu blaði.
Brot ákærða samkvæmt A-kafla ákæru telst varða við 2. gr., sbr. 4. gr., 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, ásamt síðari breytingum svo og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001. Brot ákærða samkvæmt i-lið B-kafla ákæru telst varða við 1. mgr. 12. gr. sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16, 1998. Brot ákærða samkvæmt ii-lið B-kafla ákæru telst varða við a-lið 2. mgr. 30. gr. sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16, 1998.
Að lokum er ákærða með þriðju ákærunni útgefinni sama dag gefið að sök fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfararnótt föstudagsins 22. desember 2006 verið með í vörslum sínum 0,74 grömm af amfetamíni á bifreiðarstæði við Hofsbót á Akureyri.
Telst brot þetta varða við 2. gr. sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974 ásamt síðari breytingum og 2. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar svo og til að sæta upptöku á efnum þeim er í ákærum greinir.
Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá krefst skipaður verjandi ákærða, Ingvar Þóroddsson hdl., hæfilegra málsvarnarlauna.
Hér fyrir dóminum hefur ákærði játað brot sín eins og þeim er í ákæru lýst með þeirri athugasemd að loftbyssa sú sem tilgreind er í ákæru sé einungis leikfangabyssa og hnífurinn sé notaður til skrauts. Er játning ákærða í samræmi við gögn málsins og þykja brot hans því nægjanlega sönnuð og varða þau við tilgreind lagaákvæði.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði tvívegis hlotið refsingu, í fyrra sinnið 24. febrúar 2005 er hann hlaut sekt fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni og þann 26. október 2006 var ákærði dæmdur í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot á 244. gr. almennra hegningarlaga. Brot þau er upp eru talin í tveim fyrstu ákærunum framdi ákærði áður en síðast taldi dómurinn gekk og ber því að ákvarða honum hegningarauka að því er þau brot varðar. Með síðast talda brotinu rauf ákærði skilorð framangreinds dóms en rétt þykir með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 að láta það skilorð haldast og ákvarða ákærða sérstaka refsingu nú samkvæmt 77. gr. og 78. gr. framangreindra laga. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin kr. 60.000í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan 4 vikna.
Dæma ber ákærða til að sæta upptöku þeirra efna og vopna er í ákærum greinir og nánar eru tilgreind í dómsorði.
Ekki liggur fyrir annar sakarkostnaður í málinu en þóknun skipaðs verjanda ákærða, bæði á rannsóknarstigi og hér fyrir dómi, sem þykir hæfilega ákveðin kr. 120.000 og er virðisaukaskattur þar innifalinn. Upp í þessa greiðslu hefur verjandinn fengið greiddar kr. 33.615, skv. gögnum málsins, vegna vinnu á rannsóknarstigi.
Uppkvaðning dóms þessa hefur dregist lítils háttar vegna anna dómarans.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, greiði kr. 60.000í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innar 4 vikna.
Ákærði sæti upptöku á 9,70 grömmum af amfetamíni og 2 e-töflum samkv. efnaskrám nr. 10.570, 10.574 og 10.898.
Ákærði sæti upptöku á loftbyssu af gerðinni Auto hardball og bjúglaga hnífi með 21,5 cm. löngu blaði.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ingvars Þóroddssonar hdl., kr. 120.000- og er virðisaukaskattur þar innifalinn.