Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 27. nóvember 2007.
Mál nr. S-365/2007:
D Ó M U R
nr. S-365/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Lykilorð
Svipting ökuréttar. Ávana- og fíkniefni. Ölvunarakstur.
Útdráttur
Sakfellt fyrir ölvunarakstur og fíkniefnabrot. Dæmd refsing 200.000 krónur sekt og ökuréttarsvipting í 8 mánuði.
„fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 16. ágúst 2007, ekið bifreiðinni ZT -813, undir áhrifum áfengis (l,06‰) stutta vegalengd á bifreiðastæði við hús nr. 15-19 í Tjarnarlundi á Akureyri.
Telst þetta varða við 1. mgr. sbr. 2. mgr. 45. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. lög nr. 48, 1997.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. lög nr. 66, 2006.“
Mál nr. S-366/2007 var sameinað þessu. Það höfðaði sami sýslumaður þann 6. nóvember sl. gegn ákærða; „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 16. júní 2007, verið með í vörslum sínum á heimili sínu 21,07 grömm af hassi og 1,20 grömm af tóbaksblönduðu hassi.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sæta upptöku á 21,07 grömmum af hassi og 1,20 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 11.910, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
Mál nr. S-400/2007 var einnig sameinað þessu. Það höfðaði sami sýslumaður gegn ákærða þann 19. nóvember 2007; „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudagskvöldið 24. október 2007, verið með í vörslum sínum á heimili sínu 0,82 grömm af kannabislaufum, en lögreglan fann efnið við húsleit á heimili hans.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233,2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sæta upptöku á 0,82 grömmum af kannabislaufum, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 12.734, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga.
Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu með heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.
Ákærði hefur á árunum 2004-2007 sætt refsingum samkvæmt sjö dómum og einni sátt, einkum fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefnum og umferðarlögum.
Hefur hann m.a. sætt fangelsi í samtals sjö mánuði. Síðast var hann dæmdur til greiðslu 40.000 króna sektar fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, þann 13. júlí sl. Refsingu ákærða nú ber að tiltaka samkvæmt reglum 77. gr. almennra hegningarlaga. Ákveðst hún 200.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem greiðist innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en ákærði sæti ella fangelsi í 14 daga.
Samkvæmt 1. mgr. 102. gr. umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006, ber að svipta ákærða ökurétti. Ákveðst sviptingartíminn 8 mánuðir frá birtingu þessa dóms að telja.
Gera ber efni upptækt eins og krafist er í ákæru og nánar er rakið í dómsorði.
Dæma ber ákærða til að greiða allan kostnað sakarinnar, sem samkvæmt yfirliti nemur 28.287 krónum.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X greiði 200.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en sæti ella fangelsi í 14 daga.
Ákærði er sviptur ökurétti í 8 mánuði frá birtingu dómsins að telja.
Ákærði greiði 28.287 krónur í sakarkostnað.
Upptæk eru 21,07 grömm af hassi, 1,20 grömm af tóbaksblönduðu hassi og 0,82 grömm af kannabislaufum, með nr. 11.910 og 12.734 í efnaskrá lögreglu.