Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-242/2007:

D Ó M U R

nr. S-242/2007:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Ávana- og fíkniefni.

Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir fíkniefnabrot.

„fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 28. júlí 2007, verið með í vörslum sínum 0,92 grömm af hassi, þegar lögreglan hafði afskipti af honum í miðbæ Akureyrar við hús Landsbanka Íslands í Strandgötu.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 0,92 grömmum af hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 12.104, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“

Ákærði sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að honum fjarstöddum, sbr. 120. gr. laga nr. 19/1991. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 126. gr. sömu laga að leggja dóm á málið að ákærða fjarverandi, enda varðar meint brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a. lið. Verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga.

Refsing ákærða, sem ekki hefur sætt refsingum áður, ákveðst 30.000 króna sekt til ríkissjóðs.  Skal hún greiðast innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en ákærði sæta fangelsi í tvo daga ella.

Gera ber hass upptækt eins og krafist er í ákæru og nánar er rakið í dómsorði.

Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, X, greiði kr. 30.000 krónur í sekt til ríkissjóðs og komi tveggja daga fangelsi í stað sektarinnar, verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu dómsins að telja.

Ákærði sæti upptöku á 0,92 grömmum af hassi, skv. efnaskrá lögreglu nr. 12.104.