Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-170/2007:

D Ó M U R

máli

nr. S-170/2007:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Z

Y og

Þ

(Arnar Sigfússon hdl)

Umferðarlagabrot. Þjófnaður.

Fjórir piltar fundnir sekir um þjófnað og einn þeirra einnig um brot á umferðarlögum. Ákvörðun um refsingu 3ja piltanna frestað skilorðsbundið en þeim þeim fjórða gert að sæta skilorðsbundnu fangelsi.

Mál þetta, sem dómtekið var þann 10. júlí sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með tveimur ákærum lögreglustjórans á Akureyri á hendur X, Z, Y og Þ.

Annars vegar er ákæra gefin út þann 8. júní 2007 á hendur ákærðu öllum, „fyrir eftirtalin þjófnaðarbrot:

A.

Gegn ákærðu Z og Y, fyrir að hafa aðfaranótt föstudagsins 2. febrúar 2007, í félagi brotist inn í verslunina Hreiðrið að Norðurgötu 8 á Akureyri og stolið þaðan nokkrum pökkum af sígarettum, sælgæti og gosdrykkjum.

B.

Gegn ákærðu Þ og Y, fyrir að hafa aðfaranótt sunnudagsins 4. febrúar 2007, brotist í félagi inn í þessa sömu verslun og stolið þaðan 108 pökkum af sígarettum, símakortum að andvirði 13.000-, tveim pökkum af Cheerios morgunkorni og tveim pökkum af Coca Puffs morgunkorni.

C.

Gegn ákærðu Þ og Y, fyrir að hafa aðfaranótt laugardagsins 3. febrúar 2007, brotist í félagi inn í Bílaverkstæði Akureyrar að Óseyri 6 á Akureyri og stolið þaðan 2.000 krónum í peningum, ýmiskonar verkfærum og handjárnum.

D.

Gegn ákærðu Þ og Y, fyrir að hafa aðfaranótt laugadagsins 3. febrúar 2007, brotist í félagi inn í húsnæði Dregg ehf. við Oddeyrartanga á Akureyri og stolið IBM 1400 fartölvu og loftvog.

E.

Gegn ákærðu X, Y og Z, fyrir að hafa föstudaginn 2. febrúar 2007 brotist í félagi inn í vallarhús á Akureyrarvelli við Hólabraut og stolið þaðan Hyundai borðtölvu, lyklum, geisladiskum, þremur spíritusglösum, handáburði, tveim hljóðnemum, tveim teljurum og dagatali.

Brot ákærðu teljast varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Í málinu gerir Falcon-Traffic ehf., kt. 710506-1240, Norðurgötu 8, Akureyri, bótakröfu á hendur ákærðu í ákæruliðum A og B, að fjárhæð kr. 114.320-.“

Hins vegar er um að ræða ákæru útgefna þann 5. júní sl. á hendur Z „fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 19. ágúst 2006 flutt 2 farþega í bifreiðinni TO-054 suður Hjalteyrargötu á Akureyri, en bifreiðin er aðeins skráð til að flytja 1 farþega.

Telst þetta varða við 2. mgr. 73. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.“

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.

Af hálfu ákærðu Z og Þ er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa.  Þá krefst skipaður verjandi þeirra, Arnar Sigfússon hdl., hæfilegrar málsvarnarþóknunar.

Við fyrirtöku málsins þann 10. júlí sl. sóttu ákærðu allir þing og viðurkenndu brot sín eins og þeim er lýst í ákærunum.  Eru játningar þeirra í samræmi við gögn málsins og teljast brot þeirra því nægjanlega sönnuð og varða við tilgreind lagaákvæði.  Að framangreindu virtu þykja efni til að leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Við fyrirtöku málsins höfnuðu ákærðu Z, Y og Þ höfnuðu allir fram kominni bótakröfu Falcon Traffic ehf. og var henni því vísað frá dómi með vísan til 1. mgr. 172. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála áður en málið var tekið til dóms.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði X ekki áður verið dæmdur til refsingar.  Hann var rétt tæpra 17 ára gamall þegar hann framdi brot það sem hann er nú sakfelldur fyrir.  Með vísan til framangreinds og skýlausrar játningar hans verður ákvörðun um refsingu ákærða frestað og falli niður að 2 árum liðnum haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Samkvæmt vottorði sakaskrá ríkisins var ákærði Z fundinn sekur um líkamsárás þann 14. desember 2005 en ákvörðun refsingar hans var frestað skilorðsbundið í 2 ár.   Þann 12. maí 2006 var hann dæmdur fyrir þjófnað en ákvörðun refsingar hans frestað skilorðsbundið í 2 ár.  Með brotum þeim sem hann er nú dæmdur fyrir hefur hann rofið skilorð beggja dómanna.  Ber nú að taka þau mál upp og ákvarða ákærða refsingu eftir reglum 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 2 mánuði.  Þykir þó mega fresta fullnustu refsingarinnar og hún falli niður að liðnum 2 árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði Y ekki áður verið dæmdur til refsingar.  Þegar hann framdi þau brot sem hann er nú sakfelldur fyrir var hann rétt að verða 17 ára.  Með vísan til framangreinds þykir mega fresta ákvörðun um refsingu ákærða og skal hún falla niður að liðnum 2 árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Samkvæmt vottorði sakaskrá ríkisins hefur ákærði Þ ekki áður verið dæmdur til refsingar.  Hann var tæpra 17 ára er hann framdi þau brot sem hann er hér sakfelldur fyrir.  Með vísan til framangreinds verður ákvörðun um refsingu ákærða frestað og skal hún falla niður að liðnum 2 árum frá haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Samkvæmt úrslitum málsins og 1. og 2. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 ber að dæma ákærðu Z og Þ til greiðslu þóknunar skipaðs verjanda síns, Arnars Sigfússonar hdl., sem þykir hæfilega ákveðin kr. 70.000vegna hvors þeirra að virðisaukaskatti meðtöldum.

Ekki liggja fyrir gögn um annan sakarkostnað í málinu.

Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákvörðun um refsingu ákærða X er frestað og falli niður að liðnum 2 árum haldi hann almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði, Z, sæti fangelsi í 2 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum 2 árum haldi hann almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákvörðun um refsingu ákærða Y er frestað og falli niður að liðnum 2 árum haldi hann almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákvörðun um refsingu ákærða Þ er frestað og falli niður að liðnum 2 árum haldi hann almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði Z  greiði þóknun skipaðs  verjanda síns, Arnars Sigfússonar hdl., kr. 70.000-.

Ákærði Þ greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Arnars  Sigfússonar hdl. kr. 70.000- .