Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 17. júlí 2007.
Mál nr. S-141/2007:
D Ó M U R
nr. S-141/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn valdstjórninni, en sýknaður af ákæru fyrir ranga skýrslugjöf.
X
Mál þetta, sem dómtekið var þann 28. júní s.l., höfðaði ríkissaksóknari hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru útgefinni 5. júní s.l., á hendur X; „fyrir eftirfarandi brot:
- Brot gegn valdstjórninni, með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 29. apríl 2007, notað einkennisbúning lögreglu opinberlega er ákærði klæddist einkennisskyrtu lögreglu á veitingastaðnum Kaffi Akureyri, Strandgötu 7, Akureyri.
Telst þetta varða við 117. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940
- Ranga skýrslugjöf, með því að hafa, er lögregla hafði afskipti af ákærða, í framangreint skipti, skýrt lögreglu rangt frá nafni sínu og kennitölu.
Telst þetta varða við 146. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 5. mgr. 15. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Þann 28. júní s.l. kom ákærði fyrir dóm og viðurkenndi háttsemi þá er í ákæru er lýst. Er játning hans hvað varðar fyrri lið ákærunnar í samræmi við gögn málsins og telst það brot hans því nægjanlega sannað og varðar við tilgreint lagaákvæði.
Hvað varðar seinni lið ákærunnar, þá liggur fyrir í máli þessu að óeinkennisklæddir lögreglumenn höfðu afskipti af ákærða umrætt kvöld vegna fyrri liðs ákærunnar. Í lögreglulögum nr. 90, 1996 er refsiheimild í 41. gr. Samkvæmt því ákvæði er aðeins háttsemi sem brýtur gegn ákvæðum 19.-21. gr. laganna refsiverð, en í ákæru er vísað til 5. mgr. 15. gr. nefndra laga. Í 2. mgr. 146. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, er vísað til þess að 1. mgr. 143. gr. sömu laga geti komið til greina ef efni þykja til, en skv. því ákvæði varðar það ekki sökunaut í opinberu máli refsiábyrgð þó að hann skýri rangt frá við lögreglu. Verður við skoðun á þessu að líta til þess að ekkert liggur fyrir um það í gögnum málsins að búið hafi verið að skýra ákærða frá réttindum sínum sem sakbornings, sem ákærði var vissulega orðinn á þessum tíma, enda var hann grunaður um refsivert brot. Með vísan til þess er að framan er rakið þykir ekki vera fyrir hendi nægjanlega skýr refsiheimild til að ákærða verði gerð refsing fyrir háttsemi sína samkvæmt 2. lið ákærunnar. Ber því að sýkna ákærða af síðari lið ákærunnar.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði ekki sætt refsingu áður. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin kr. 20.000.- í sekt til ríkissjóðs.
Ekki liggja fyrir gögn um sakarkostnað í málinu.
Dóm þennan kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði X greiði kr. 20.000í sekt til ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.