Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. E-76/2007:

Ú R S K U R Ð U R

nr. E-76/2007:

Pat ehf.

(Arnar Sigfússon hdl)

gegn

Tréverki ehf

(Guðjón Ólafur Jónsson hrl)

Frávísun frá héraðsdómi.

Frávísun frá héraðsdómi, vanreifun

Mál þetta, sem tekið var til úrskurðar þann 24. maí 2007 um fram komna frávísunarkröfu, hefur Pat ehf. kt. 000000-0000, Hafnarbraut 14, 620 Dalvík, höfðað hér fyrir dómi með stefnu birtri 26. janúar 2007, gegn Tréverk ehf., kt. 000000-0000, Grundargötu 8-10, 620, Dalvík.

Dómkröfur stefnanda eru að stefnda verði dæmt til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð kr. 859.050,- ásamt dráttarvöxtum skv. III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 af áðurgreindir upphæð frá 20. júní 2006 til greiðsludags auk málskostnaðar.

Dómkröfur stefnda eru aðallega að málinu verði vísað frá dómi, til vara að stefnda verði sýknað af öllum kröfum stefnanda og til þrautavara að kröfur stefnanda verði stórlega lækkaðar.  Í öllum tilvikum krefst stefnda málskostnaðar úr hendi stefnanda.

Í þessum þætti málsins krefst stefnandi þess, að frávísunarkröfu stefnda verði hafnað og málskostnaðarákvörðun verði látin bíða efnisdóms í málinu.

I.

Krafa stefnanda í málinu er samkvæmt reikningi útgefnum 20. júní 2006 vegna greiðslu á leigu fyrir „lyftara“ á tímabilinu nóvember 2005 til maí 2006, eða í 6 mánuði.  Liggur fyrir að stefnandi sendi stefnda nefndan reikning, sem er að fjárhæð kr. 859.050,- að meðtöldum virðisaukaskatti. Skuldin hafi ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtutilraunir og telur stefnandi því nauðsynlegt að höfða þetta mál. Máli sínu til stuðnings hefur stefnandi varðandi lagarök vísað til meginreglu kröfuréttarins um efndir fjárskuldbindinga, sbr. 45. og 47. gr. laga um lausafjárkaup nr. 50, 2000.

II.

Í greinargerð er af hálfu stefnda greint frá málavöxtum á þá leið að í árslok 2005 hafi það fengið lánaðan lyftara hjá Steinari Agnarssyni, en hann hafi þá haft slíkt tæki í vörslum sínum.  Stefndi hafi af og til notað lyftarann á byggingastað sínum á Akureyri, en í maímánuði 2006 hafi Steinar óskað eftir lyftaranum á ný og hafi honum þá verið komið til skila til hans.  Af hálfu stefnda er til þess vísað að nefndur Steinar hafi á umræddu tímabili m.a. verið framkvæmdastjóri hjá stefnanda.

Í byrjun júní 2006 hafi stefnda borist framangreindur reikningur frá stefnanda vegna leigu á lyftaranum.  Hafi það verið nokkuð óvænt þar eð stefnda hafi aldrei talið sig hafa átt í viðskiptum við stefnanda.

Stefndi byggir frávísunarkröfu sína á því að málatilbúnaður stefnanda sé óskýr og stríði gegn meginreglum einkamálaréttarfars um skýran og glöggan málatilbúnað, sbr. einkum e- og f- liðum 1. mgr. 80. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91, 1991.

Bendir stefnda á að samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum frá Vinnueftirlitinu hafi umræddur lyftari verið skráð eign Glitnis eignafjármögnunar frá 9. júní 2000. Skráðir umráðaaðilar lyftarans hafi hins vegar verið Bátahöllin ehf., frá 18. maí 2005 til 28. apríl 2006, og Snuddi ehf., þar sem nefndur Steinar Agnarsson hafi verið framkvæmdastjóri, frá nefndum degi til 18. janúar 2007, en síðan Glitni frá þeim degi.

Stefndi heldur því fram að samkvæmt framansögðu sé á engan hátt gerð grein fyrir því á hvaða grundvelli stefnandi geti átt aðild að málinu og þ.a.l. haft uppi kröfur um leigugjald á hendur stefnda.  Þannig liggi ekkert fyrir í gögnum málsins hvernig samningssambandi Glitnis og stefnanda hafi verið háttað varðandi ráðin yfir lyftaranum, eða hvort yfir höfuð eitthvað samningssamband hafi verið fyrir hendi er skýri umráð stefnanda á lyftaranum.  Stefnda bendir jafnframt á að í stefnu sé ekki vikið að því hvernig stefnandi telur sig þrátt fyrir þetta vera réttan aðila að málinu og geta krafið stefnda um greinda leigu. Málið sé því verulega vanreifað og beri að vísa því frá dómi.

Við munnlegan flutning var af hálfu stefnanda til þess vísað hér væri um einfalt skuldamál að ræða, byggt á einum reikningi.  Reikningurinn sé skýr og þó svo að ekki sé tilgreint nákvæmlega við hvaða lyftara sé átt, þá sé það atriði ekki umdeilt í málinu.

Af hálfu stefnanda er óljósri aðild mótmælt.  Óumdeilt sé að fyrirsvarsmaður stefnda hafi haft samband við fyrirsvarsmann stefnanda og falast eftir að fá umræddan lyftara lánaðan, en stefnandi hafi haft hann í vörslum sínum.  Bendir stefnandi á að ágreiningur varðandi leiguheimild vegna kaupleiguákvæða varði efnisþátt málsins er verði eftir atvikum til lykta leitt við skýrslutökur fyrir dómi.

Að öllu þessu virtu telur stefnandi að ekki hafi verið sýnt fram á að slíkir annmarkar séu á málinu að torveldi varnir stefnda eða að þeir leiði til þess að ekki megi leggja efnisdóm á það.

III.

Í 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála er að finna meginreglur um að stefna þurfi að vera skýr.  Er aðal tilgangur þessara reglna að stefndi geti með góðu móti áttað sig á þeim kröfum sem fram eru settar og að hann geti tekið til varna.  Af þessari reglu má ráða að í stefnu megi m.a. ekki vera hafið yfir skynsamlegan vafa hver sé réttur aðili málsins.  Ef viðhlítandi skýringar eða upplýsingar vantar þar á getur slíkt varðað frávísun, en einnig eftir atvikum sýknu sbr. 2. mg. 16. gr. nefndra laga.

Í máli þessu virðist stefnandi samkvæmt stefnu og framlögðum gögnum vera að gera kröfu um leigu á lyftara sem er í eigu þriðja aðila.  Gögn hafa að mati dómsins ekki verið lögð fram af hálfu stefnanda er sýna fram á líkt og atvikum er háttað á hvaða grundvelli hann geti lagt fram slíka kröfu á hendur stefnda.

Að þessu virtu, reglunnar um afdráttarlausan málflutning og þar sem útskýringar lögmanns stefnanda eru að mati dómsins ekki fullnægjandi ber, með vísan til röksemda stefnda, að fallast á að málinu verði vísað frá dómi.

Með vísan til 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91, 1991 ber stefnanda að greiða stefnda málskostnað, sem þykir hæfilega ákveðin 130.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Úrskurð þennan kveður upp Ólafur Ólafsson héraðsdómari.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Máli þessu er vísað frá dómi.

Stefnandi, Pat ehf., greiði stefnda, Tréverk ehf. 130.000 krónur í málskostnað.