Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-421/2006:

D Ó M U R

nr. S-421/2006:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Mál

þetta, sem dómtekið var þann 28. nóvember sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi

Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 10.

nóvember 2006, á hendur X,

„fyrir

fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 6. ágúst 2006, verið

með í vörslum sínum 2,07 grömm af amfetamíni, þegar lögreglan hafði afskipti af

honum í porti á bak við Nætursöluna á Akureyri.

Telst

þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr.

65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998

og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr.

233, 2001.

Þess

er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 2,07

grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá

nr. 10.025, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr.

reglugerðar nr. 233, 2001.“

Við

þingfestingu málsins þann 28. nóvember sl., sótti ákærði ekki þing og var málið

þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr.

19/1991.  Þykir mega jafna útivist ákærða

bága við gögn málsins.  Telst sök ákærða

því nægjanlega sönnuð og varðar við tilgreind laga- og reglugerðarákvæði í

ákæruskjali.

Samkvæmt

vottorði sakaskrár ríkisins var ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir

hraðakstur þann 5. desember 2005 og var hann þá jafnframt sviptur ökurétti í 2

mánuði.  Hefur hann ekki sætt öðrum

refsingum.  Þykir refsing ákærða nú

hæfilega ákveðin kr. 50.000- í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í

stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Með

vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra ákvæða í

ákæruskjali ber að gera upptæk fíkniefni svo sem í dómsorði greinir.

Engan

sakarkostnað leiddi af rekstri málsins.

Dóminn

kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði

X greiði kr. 50.000- í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað

sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Ákærði

sæti upptöku á 2,07 grömmum af amfetamíni samkvæmt efnaskrá lögreglu nr.

10.025.

Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir vörslur víkniefna og til að sæta upptöku efnanna

X

Mál þetta, sem dómtekið var þann 28. nóvember sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 10. nóvember 2006, á hendur X, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 6. ágúst 2006, verið með í vörslum sínum 2,07 grömm af amfetamíni, þegar lögreglan hafði afskipti af honum í porti á bak við Nætursöluna á Akureyri.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 2,07 grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 10.025, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“

Við þingfestingu málsins þann 28. nóvember sl., sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991.  Þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans í málinu, sbr. téða lagagrein, enda fer sú niðurstaða eigi í bága við gögn málsins.  Telst sök ákærða því nægjanlega sönnuð og varðar við tilgreind laga- og reglugerðarákvæði í ákæruskjali.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins var ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir hraðakstur þann 5. desember 2005 og var hann þá jafnframt sviptur ökurétti í 2 mánuði.  Hefur hann ekki sætt öðrum refsingum.  Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin kr. 50.000í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra ákvæða í ákæruskjali ber að gera upptæk fíkniefni svo sem í dómsorði greinir.

Engan sakarkostnað leiddi af rekstri málsins.

Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði X greiði kr. 50.000í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Ákærði sæti upptöku á 2,07 grömmum af amfetamíni samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 10.025.