Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 11. desember 2006.
Mál nr. S-416/2006:
D Ó M U R
nr. S-416/2006:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Mál
þetta, sem dómtekið var þann 28. nóvember sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi
Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 10.
nóvember 2006, á hendur X,
„fyrir
fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 6. ágúst 2006, verið
með í vörslum sínum 1,23 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni þar sem hann var
á gangi um tjaldsvæði við félagsheimili íþróttafélagsins Þórs við Skarðshlíð á
Akureyri.
Telst
þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr.
65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og sbr. lög nr. 82/1998 og
2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr.
233/2001.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 1,23
grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint
er í efnaskrá nr. 10.032, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr.
14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Við
þingfestingu málsins þann 28. nóvember sl., sótti ákærði ekki þing og var málið
þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr.
19/1991. Þykir mega jafna útivist ákærða
bága við gögn málsins. Telst sök ákærða
því nægjanlega sönnuð og varðar við tilgreind laga- og reglugerðarákvæði í
ákæruskjali.
Samkvæmt
vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði þrisvar gengist undir sátt um greiðslu
sekta fyrir umferðarlagabrot. Þá var ákærði
þann 9. júní 2005 dæmdur til greiðslu kr. 232.000- í sekt fyrir
fíkniefnalagabrot og þann 15. september 2006 var hann einnig dæmdur til
Útdráttur
Karlmaður dæmdur fyrir vörslur fíkniefna, en ekki gerð refsing þar sem um hegningarauka var að ræða. Hann var dæmdur til að sæta upptöku efnanna.
X
Mál þetta, sem dómtekið var þann 28. nóvember sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 10. nóvember 2006, á hendur X, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 6. ágúst 2006, verið með í vörslum sínum 1,23 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni þar sem hann var á gangi um tjaldsvæði við félagsheimili íþróttafélagsins Þórs við Skarðshlíð á Akureyri.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og sbr. lög nr. 82/1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233/2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 1,23 grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 10.032, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Við þingfestingu málsins þann 28. nóvember sl., sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991. Þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans í málinu, sbr. téða lagagrein, enda fer sú niðurstaða eigi í bága við gögn málsins. Telst sök ákærða því nægjanlega sönnuð og varðar við tilgreind laga- og reglugerðarákvæði í ákæruskjali.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði þrisvar gengist undir sátt um greiðslu sekta fyrir umferðarlagabrot. Þá var ákærði þann 9. júní 2005 dæmdur til greiðslu kr. 232.000í sekt fyrir fíkniefnalagabrot og þann 15. september 2006 var hann einnig dæmdur til greiðslu kr. 90.000í sekt fyrir fíkniefnalagabrot. Það brot sem ákærði er nú dæmdur fyrir framdi hann áður en dómurinn var upp kveðinn þann 15. september sl. og ber að ákvarða honum hegningarauka eftir reglum 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Verður ákærða því ekki gerð sérstök refsing nú.
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra ákvæða í ákæruskjali ber að gera upptæk fíkniefni svo sem í dómsorði greinir.
Engan sakarkostnað leiddi af rekstri málsins.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærða, X, er ekki gerð sérstök refsing.
Ákærði sæti upptöku á 1,23 grömmum af kannabisefni samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 10.032.